Mynd af vellinum
Lið 1
vs
Lið 2

Liverpool á móti Man United

Anfield, Liverpool
17. október, 2025 -
20. október, 2025
UPPSELT
Verð
239.900 kr.
-
279.900 kr.
Stórleikjaferð: Liverpool vs Manchester United 17.–19. október 2025 Vertu með í ferð sem enginn fótboltaaðdáandi vill missa af – þegar Liverpool tekur á móti erkifjendum sínum Manchester United á Anfield! Þetta er toppferð frá upphafi til enda, skipulögð af Premier Trips með lúxus, gæði og þjónustu í fyrirrúmi. Beint flug frá Keflavík til Manchester – föstudaginn 17. október Einkaflutningur í 8 manna lúxusbílum frá flugvelli til Liverpool og aftur heim Gisting á 4 stjörnu hóteli á besta stað í miðbæ Liverpool Morgunverður innifalinn Aðgangur að sundlaug, sauna og líkamsræktarsal Aðgöngumiði á stórleikinn Liverpool – Manchester United Topp sæti á Longside Lower – með frábæru útsýni yfir völlinn Verð: 239.900 kr. á mann miðað við 2 saman í herbergi 279.900 kr. á mann miðað við einstakling í einbýli Lokagreiðsla er innheimt 8 vikum fyrir brottför. PremierTrips áskilur sér rétt til að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki. Náist ekki lágmarksþátttaka, endurgreiðir PremierTrips að fullu það sem þegar hefur verið greitt.

Innifalið

✈️ Flug með easyJet til og frá Manchester – skattar og gjöld innifalin 🧳 23 kg innritaður farangur + lítill handfarangur 🏨 Gisting í 3 nætur með morgunverði á 4 stjörnu hóteli í miðbæ Liverpool 🎟️ Aðgöngumiði á leikinn Liverpool – Manchester United (Longside Lower – topp sæti) 🚐 Akstur til og frá flugvelli í þægilegum 8 manna lúxusbílum 🎁 Glaðningur frá Premier Trips Travel – við kunnum að meta okkar viðskiptavini!

ETA rafræn ferðaheimild til UK

Það er alfarið á ábyrgð farþega að sækja um ETA til að komast inn til Bretlands.

gov.uk
Athugið að Bretland hefur sett fram skilyrði um að allir ferðamenn sem þurfa ekki vegabréfsáritun, verða að framvísa rafrænni ferðaheimild (ETA).
Ríkisborgarar Schengen svæðisins þurfa að hafa vegabréf eða önnur viðurkennd skilríki með í för. Skilríkin þurfa að vera í gildi allan dvalartímann í landinu. Vegabréfsáritun er óþörf.
Við mælum með að fólk sæki UK ETA appið og klári umsóknina og greiðsluna þar í gegn.

Kostnaður

Rafræn ferðaheimild (ETA) kostar £10 á mann.
Það verða ALLIR að sækja um þessa heimild, fullorðnir sem börn. Einn aðili má sækja um fyrir aðra.
Ekki er hægt að fá gjaldið endurgreitt eftir að sótt er um.

Áður en þú byrjar umsókn

Þú þarft að hafa eftirfarandi við hendina:

Vegabréfið sjálft sem þú ferðast með, ekki ljósrit né rafrænt.
Aðgang að netfanginu þínu.
Greiðslukort.

Þú verður beðin(n) um að hlaða upp eða taka mynd af:

Vegabréfinu.
Andlitsmynd af þeim sem sótt er um fyrir.
Þú þarft ekki að slá inn ferðaupplýsingar þínar.
Ef þú getur ekki notað APP þá má sækja um hér.
Almennar upplýsingar um rafrænu ferðaheimildina (ETA) má sjá hér.
Premier Trips