Mynd af vellinum
Lið 1
vs
Lið 2

Liverpool á móti Burnley

Anfield, Liverpool
16. janúar, 2026 -
19. janúar, 2026
Verð
199.900 kr.
-
239.900 kr.
Liverpool vs Burnley 📅 16 - 19 Janúar 2026 Komdu með í skemmtilega fótboltaferð til Liverpool þar sem heimamenn taka á móti Burnley á Anfield! Ferðin er skipulögð af Premier Trips með lúxus, gæði og persónulega þjónustu í fyrirrúmi – frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. 🔥 Einvígi með sögulegan blæ Leikir Liverpool og Burnley hafa oft einkennst af mikilli baráttu, hraða og spennu. Burnley er þekkt fyrir hörkuleik og óbilandi vinnusemi og lætur aldrei undan – sama hver andstæðingurinn er. Á Anfield hafa heimamenn þó yfirleitt haft betur, knúnir áfram af rauðklæddum stuðningsmönnum sem skapa einstakt andrúmsloft. Burnley kemur ákveðið til leiks, tilbúið að reyna að stela stigum, en Liverpool ætlar sér sigur fyrir framan sína ástríðufullu áhorfendur. Þú munt upplifa magnaðan leikdag á Anfield, sjá heimsklassa leikmenn í eldlínunni og verða hluti af ógleymanlegri ferð sem sameinar spennu, stemningu og frábæra fótboltaupplifun. ✈️ Beint flug frá Keflavík til Manchester – föstudaginn 21. nóvember 🚐 Einkaflutningur í 8 manna lúxusbílum frá flugvelli til Liverpool og aftur til Manchester 🏨 Gisting á 4 stjörnu hóteli á besta stað í miðbæ Liverpool 🍽️ Morgunverður innifalinn 💦 Aðgangur að sundlaug, sauna og líkamsræktarsal 🎟️ Aðgöngumiði á leikinn Liverpool – Burnley 👀 Sætin á leiknum – New Anfield Road Stand seating: Level 1 Upper Tier Padded seats (Block AM1/AM7) 3 klst. aðgangur fyrir leik og 1 klst. eftir leik Pre-match complimentary street food Drykkur í hálfleik innifalinn (bjór, vín eða gos) Leikdagsdagskrá innifalin Afþreying fyrir leik Svo mætir LFC Legend fyrir leik og heilsar upp á stuðningmenn 199.900 kr. á mann miðað við 2 saman í herbergi 239.900 kr. á mann miðað við einstakling í einbýli 👨‍👩‍👧‍👦 Hjón með að hámarki tvö börn undir 15 ára geta verið saman í herbergi 🚫 3 fullorðnir geta ekki verið saman í herbergi Staðfestingargjald: 50 þúsund per farþega 📌 Lokagreiðsla: 8 vikum fyrir brottför. ✅ Full endurgreiðsla ef ferðin fellur niður af okkar hálfu ℹ️ Premier Trips áskilur sér rétt til að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki. ⚽ Leikdagur: Óstaðfestur Athugið að enska knattspyrnusambandið staðfestir nákvæman leikdag um það bil 7 vikum fyrir leik. Leikurinn getur færst

Innifalið

✈️ Flug með easyJet til og frá Manchester – skattar og gjöld innifalin 🧳 20 kg innrituð taska + Bakpoki 🏨 Gisting í 3 nætur með morgunverði á glæsilegu Novotel City Centre 4★ hóteli í hjarta Liverpool 🎟️ Aðgöngumiði á stórleikinn Liverpool – Burnley – VIP BRODIES Level 1 Upper Tier Padded seats (Block AM1/AM7) 🚐 Akstur til og frá flugvelli í þægilegum 8 manna lúxusbílum

ETA rafræn ferðaheimild til UK

Það er alfarið á ábyrgð farþega að sækja um ETA til að komast inn til Bretlands.

gov.uk
Athugið að Bretland hefur sett fram skilyrði um að allir ferðamenn sem þurfa ekki vegabréfsáritun, verða að framvísa rafrænni ferðaheimild (ETA).
Ríkisborgarar Schengen svæðisins þurfa að hafa vegabréf eða önnur viðurkennd skilríki með í för. Skilríkin þurfa að vera í gildi allan dvalartímann í landinu. Vegabréfsáritun er óþörf.
Við mælum með að fólk sæki UK ETA appið og klári umsóknina og greiðsluna þar í gegn.

Kostnaður

Rafræn ferðaheimild (ETA) kostar £10 á mann.
Það verða ALLIR að sækja um þessa heimild, fullorðnir sem börn. Einn aðili má sækja um fyrir aðra.
Ekki er hægt að fá gjaldið endurgreitt eftir að sótt er um.

Áður en þú byrjar umsókn

Þú þarft að hafa eftirfarandi við hendina:

Vegabréfið sjálft sem þú ferðast með, ekki ljósrit né rafrænt.
Aðgang að netfanginu þínu.
Greiðslukort.

Þú verður beðin(n) um að hlaða upp eða taka mynd af:

Vegabréfinu.
Andlitsmynd af þeim sem sótt er um fyrir.
Þú þarft ekki að slá inn ferðaupplýsingar þínar.
Ef þú getur ekki notað APP þá má sækja um hér.
Almennar upplýsingar um rafrænu ferðaheimildina (ETA) má sjá hér.
Premier Trips