

vs

Liverpool á móti Man City
Anfield, Liverpool
6. febrúar, 2026 -
9. febrúar, 2026
UPPSELT
Verð
239.900 kr.
-
279.900 kr.
Liverpool vs Manchester City 6-9. Febrúar 2026
Vertu með í ferð sem enginn fótboltaaðdáandi vill missa af – þegar Liverpool tekur á móti Manchester City á Anfield! Þetta er toppferð frá upphafi til enda, skipulögð af Premier Trips með lúxus, gæði og þjónustu í fyrirrúmi.
Beint flug frá Keflavík til Manchester 6 Febrúar 2026
Einkaflutningur í 8 manna lúxusbílum frá flugvelli til Liverpool og aftur tilbaka
Gisting á 4 stjörnu hóteli á besta stað í miðbæ Liverpool
Morgunverður innifalinn
Aðgangur að sundlaug, sauna og líkamsræktarsal
Aðgöngumiði á stórleikinn Liverpool – Manchester City
Topp sæti á Longside Lower – með frábæru útsýni yfir völlinn
Verð:
239.900 kr. á mann miðað við 2 saman í herbergi
279.900 kr. á mann miðað við einstakling í einbýli
Innifalið
✈️ Flug með Icelandair til og frá Manchester – skattar og gjöld innifalin
🧳 23 kg innritaður farangur + lítill handfarangur
🏨 Gisting í 3 nætur með morgunverði á 4 stjörnu hóteli í miðbæ Liverpool
🎟️ Aðgöngumiði á leikinn Liverpool – Manchester City (Longside Lower – topp sæti)
🚐 Akstur til og frá flugvelli í þægilegum 8 manna lúxusbílum
🎁 Glaðningur frá Premier Trips Travel – við kunnum að meta okkar viðskiptavini!
ETA rafræn ferðaheimild til UK
Það er alfarið á ábyrgð farþega að sækja um ETA til að komast inn til Bretlands.

Athugið að Bretland hefur sett fram skilyrði um að allir ferðamenn sem þurfa ekki vegabréfsáritun, verða að framvísa rafrænni ferðaheimild (ETA).
Ríkisborgarar Schengen svæðisins þurfa að hafa vegabréf eða önnur viðurkennd skilríki með í för. Skilríkin þurfa að vera í gildi allan dvalartímann í landinu. Vegabréfsáritun er óþörf.
Við mælum með að fólk sæki UK ETA appið og klári umsóknina og greiðsluna þar í gegn.
Kostnaður
Rafræn ferðaheimild (ETA) kostar £10 á mann.
Það verða ALLIR að sækja um þessa heimild, fullorðnir sem börn. Einn aðili má sækja um fyrir aðra.
Ekki er hægt að fá gjaldið endurgreitt eftir að sótt er um.
Áður en þú byrjar umsókn
Þú þarft að hafa eftirfarandi við hendina:
Vegabréfið sjálft sem þú ferðast með, ekki ljósrit né rafrænt.
Aðgang að netfanginu þínu.
Greiðslukort.
Þú verður beðin(n) um að hlaða upp eða taka mynd af:
Vegabréfinu.
Andlitsmynd af þeim sem sótt er um fyrir.
Þú þarft ekki að slá inn ferðaupplýsingar þínar.
Ef þú getur ekki notað APP þá má sækja um hér.
Almennar upplýsingar um rafrænu ferðaheimildina (ETA) má sjá hér.