Mynd af vellinum
Lið 1
vs
Lið 2

Man United á móti Aston Villa

Old Trafford, Manchester
13. mars, 2026 -
16. mars, 2026
Sæti : 20
Fararstjórn
Verð
179.900 kr.
-
219.900 kr.
Manchester United vs Aston Villa 📅 13.–16. mars 2026 🕺 Fararstjóri & skemmtanastjóri: Siggi Jiiibiii Komdu með í ógleymanlega helgarferð til Manchester þar sem við mætum á Old Trafford og sjáum Manchester United taka á móti Aston Villa – alvöru leikur á alvöru velli! Með í för er bráðfyndni og óviðjafnanlegi Siggi Jiiibiii, einu sinni fyndnasti maður Suðurlands – og sannkallaður Old Trafford-veterani sem þekkir Manchester eins og lófann á sér. Hann heldur uppi stemningunni alla helgina og sér til þess að þú fáir sem mest út úr ferðinni – hvort sem það er á vellinum, í miðbænum eða á pöbb-röltinu! 🎉 Þetta verður helgi sem þú munt seint gleyma – fjör, fótbolti og frábær félagsskapur með Jiiibiii! 💰 Verð: 👫 179.900 kr. á mann (miðað við 2 í herbergi) 👤 219.900 kr. á mann í einbýli 📌 Staðfestingargjald: 50.000 kr. per farþega 🗓️ Lokagreiðsla: 8 vikum fyrir brottför ✅ Full endurgreiðsla ef ferð fellur niður ⚠️ Premier Trips áskilur sér rétt til að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.

Innifalið

✈️ Flug með EasyJet til og frá Manchester – skattar og gjöld innifalin 🧳 23 kg innritaður farangur +Bakpoki 🏨 Gisting á Novotel í 3 nætur með morgunverði á 4 stjörnu hóteli í miðbæ Manchester 🎟️ Aðgöngumiði á leikinn Manchester United - Aston Villa (Longside A klassa miðar) 👥 Fararstjóri með í ferð 🎁 Glaðningur frá Premier Trips Travel – við kunnum að meta okkar viðskiptavini!

Fararstjóri

Siggi Jiiibbiii!
Mynd af fararstjóra

ETA rafræn ferðaheimild til UK

Það er alfarið á ábyrgð farþega að sækja um ETA til að komast inn til Bretlands.

gov.uk
Athugið að Bretland hefur sett fram skilyrði um að allir ferðamenn sem þurfa ekki vegabréfsáritun, verða að framvísa rafrænni ferðaheimild (ETA).
Ríkisborgarar Schengen svæðisins þurfa að hafa vegabréf eða önnur viðurkennd skilríki með í för. Skilríkin þurfa að vera í gildi allan dvalartímann í landinu. Vegabréfsáritun er óþörf.
Við mælum með að fólk sæki UK ETA appið og klári umsóknina og greiðsluna þar í gegn.

Kostnaður

Rafræn ferðaheimild (ETA) kostar £10 á mann.
Það verða ALLIR að sækja um þessa heimild, fullorðnir sem börn. Einn aðili má sækja um fyrir aðra.
Ekki er hægt að fá gjaldið endurgreitt eftir að sótt er um.

Áður en þú byrjar umsókn

Þú þarft að hafa eftirfarandi við hendina:

Vegabréfið sjálft sem þú ferðast með, ekki ljósrit né rafrænt.
Aðgang að netfanginu þínu.
Greiðslukort.

Þú verður beðin(n) um að hlaða upp eða taka mynd af:

Vegabréfinu.
Andlitsmynd af þeim sem sótt er um fyrir.
Þú þarft ekki að slá inn ferðaupplýsingar þínar.
Ef þú getur ekki notað APP þá má sækja um hér.
Almennar upplýsingar um rafrænu ferðaheimildina (ETA) má sjá hér.
Premier Trips