

vs

Liverpool á móti Aston Villa
Anfield, Liverpool
31. október, 2025 -
3. nóvember, 2025
UPPSELT
Verð
199.900 kr.
-
239.900 kr.
📅 31. október – 3. nóvember 2025
✨ Upplifðu einstaka fótboltahelgi í Liverpool! ✨
Komdu með Premier Trips á anfield þegar Liverpool tekur á móti Aston Villa í leik sem ekkert er gefið eftir.
Þetta er leikur sem lofar miklu: tvö söguleg lið sem hafa margsinnis tekist á í stórbrotnum viðureignum. Aston Villa hefur byggt upp sterkt lið og ætlar sér að velta risum, en Anfield er þekktur sem ósigrandi vígi þar sem The Kop tekur yfir og breytir leiknum með ótrúlegum stuðningi.
✈️ Ferðaupplýsingar:
Brottför frá Íslandi að morgni föstudags 31. október
Heimflug mánudaginn 3. nóvember kl. 08:35 – áætluð lending á Íslandi um kl. 16:00
🎟️ Innifalið í ferðinni:
Flug og gisting í miðbæ Liverpool
Nýja Anfield Road Stand – Level 1 Upper Tier (Block AM1/AM7)
Þægileg padded sæti með frábæru útsýni
3 klst. aðgangur fyrir leik + 1 klst. eftir leik
Pre-match complimentary street food
Drykkur í hálfleik (bjór, vín eða gos)
Leikdagsdagskrá & afþreying fyrir leik
Liverpool Legend mætir og heilsar stuðningsmönnum
💰 Verð:
199.900 kr. á mann (miðað við 2 saman í herbergi)
239.900 kr. á mann (einstaklingsherbergi)
⚠️ Lokagreiðsla: 8 vikum fyrir brottför
👨👩👧👦 Hjón með allt að 2 börn undir 15 ára geta verið saman í herbergi
🚫 3 fullorðnir geta ekki verið saman í herbergi
✅ Full endurgreiðsla ef ferð fellur niður af okkar hálfu
ℹ️ Premier Trips áskilur sér rétt til að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.
⚽ Leikdagur óstaðfestur – nákvæm dagsetning verður staðfest u.þ.b. 7 vikum fyrir leik.
Innifalið
✈️ Flug með EasyJet til og frá Manchester – skattar og gjöld innifalin
🧳 20kg innrituð taska + Bakpoki
🚐 Akstur til og frá flugvelli
– Þægilegir lúxusbílar fyrir 8 manns
🏨 Gisting í 3 nætur með morgunverði á Novotel city center 4 stjörnu hótel í miðbæ Liverpool
🎟️ Aðgöngumiði á leikinn Liverpool – Aston Villa (VIP Brodies lounge anfield)
🤝 Premiertrips er í samstarfi við AutoPark!
Við bjóðum kúnnum okkar veglegan afslátt af bílastæðum við Leifsstöð – frábær leið til að byrja ferðina stresslaust.
ETA rafræn ferðaheimild til UK
Það er alfarið á ábyrgð farþega að sækja um ETA til að komast inn til Bretlands.

Athugið að Bretland hefur sett fram skilyrði um að allir ferðamenn sem þurfa ekki vegabréfsáritun, verða að framvísa rafrænni ferðaheimild (ETA).
Ríkisborgarar Schengen svæðisins þurfa að hafa vegabréf eða önnur viðurkennd skilríki með í för. Skilríkin þurfa að vera í gildi allan dvalartímann í landinu. Vegabréfsáritun er óþörf.
Við mælum með að fólk sæki UK ETA appið og klári umsóknina og greiðsluna þar í gegn.
Kostnaður
Rafræn ferðaheimild (ETA) kostar £10 á mann.
Það verða ALLIR að sækja um þessa heimild, fullorðnir sem börn. Einn aðili má sækja um fyrir aðra.
Ekki er hægt að fá gjaldið endurgreitt eftir að sótt er um.
Áður en þú byrjar umsókn
Þú þarft að hafa eftirfarandi við hendina:
Vegabréfið sjálft sem þú ferðast með, ekki ljósrit né rafrænt.
Aðgang að netfanginu þínu.
Greiðslukort.
Þú verður beðin(n) um að hlaða upp eða taka mynd af:
Vegabréfinu.
Andlitsmynd af þeim sem sótt er um fyrir.
Þú þarft ekki að slá inn ferðaupplýsingar þínar.
Ef þú getur ekki notað APP þá má sækja um hér.
Almennar upplýsingar um rafrænu ferðaheimildina (ETA) má sjá hér.