Mynd af vellinum
Lið 1
vs
Lið 2

Liverpool á móti Everton

Anfield, Liverpool
19. september, 2025 -
22. september, 2025
UPPSELT
Verð
229.000 kr.
-
2.699.000 kr.
Liverpool vs Everton 📅 19.– 22. September 2025 Komdu með í skemmtilega fótboltaferð til Liverpool þar sem heimamenn taka á móti Everton á Anfield! Ferðin er skipulögð af Premier Trips með lúxus, gæði og þjónustu í fyrirrúmi – frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. 🔥 Merseyside-slagur með sögulegan hljóm Einvígi Liverpool og Everton eru með þeim eldfimustu í ensku knattspyrnunni – þetta er meira en leikur, þetta er stríð um stoltið í borginni. Þegar þessi lið mætast, skiptir staða á töflunni engu máli. Allt verður lagt í sölurnar í baráttu þar sem enginn vill gefa tommu eftir. 🎶 Á Anfield nær stemningin suðupunkti löngu fyrir fyrsta flaut. „You'll Never Walk Alone“ ómar yfir stúkunum, og hver einasti stuðningsmaður stendur fast á bak við rauða liðið sitt. Derby-dagur á Anfield er rafmagnaður – þú finnur spennuna í loftinu, sjávarloftið blandast reyknum frá blysum og það eina sem skiptir máli er að halda borginni rauðri. ⚽ Þótt Liverpool hafi haft betur í flestum viðureignum undanfarin ár, er það alltaf spurning fyrirfram: Nær Liverpool að halda titlinum „Bestir í borginni“? Everton-menn mæta með þéttan varnarleik, eld í brjósti og draum um að raska stöðunni. En heimamenn ætla sér ekkert annað en sigur – fyrir klúbbinn, fyrir stuðningsmennina, og fyrir yfirráð í Merseyside. ✈️ Beint flug frá Keflavík til Manchester – föstudaginn 19.September 🚐 Einkaflutningur í 8 manna lúxusbílum frá flugvelli til Liverpool og aftur til Manchester 🏨 Gisting á 4 stjörnu hóteli á besta stað í miðbæ Liverpool 🍽️ Morgunverður innifalinn 💦 Aðgangur að sundlaug, sauna og líkamsræktarsal 🎟️ Aðgöngumiði á leikinn Liverpool – Nottingham Forest 👀 Sætin á leiknum – New Anfield Road Stand seating: Level 1 Upper Tier Padded seats (Block AM1/AM7) 3 klst. aðgangur fyrir leik og 1 klst. eftir leik Pre-match complimentary street food Drykkur í hálfleik innifalinn (bjór, vín eða gos) Leikdagsdagskrá innifalin Afþreying fyrir leik Svo mætir LFC Legend fyrir leik og heilsar upp á stuðningmenn 💰 Verð: 229.900 kr. á mann miðað við tvo saman í herbergi 269.900 kr. á mann miðað við einstakling í einbýli 👨‍👩‍👧‍👦 Hjón með að hámarki tvö börn undir 15 ára geta verið saman í herbergi 🚫 3 fullorðnir geta ekki verið saman í herbergi 📌 Greiðsluskilmálar: Staðfestingargjald: 50.000 kr. á hvern farþega Lokagreiðsla: Greiðist að fullu 8 vikum fyrir brottför ✅ Full endurgreiðsla ef ferðin fellur niður af okkar hálfu ℹ️ Premier Trips áskilur sér rétt til að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki. ⚽ Leikdagur: Óstaðfestur Athugið að enska knattspyrnusambandið staðfestir nákvæman leikdag um það bil 7 vikum fyrir leik. Leikurinn getur færst til.

Innifalið

✈️ Flug með easyJet til og frá Manchester – skattar og gjöld innifalin 🧳 23 kg taska + Handfarangur 🏨 Gisting í 3 nætur með morgunverði á glæsilegu Novotel City Centre 4★ hóteli í hjarta Liverpool 🎟️ Aðgöngumiði á stórleikinn Liverpool – Everton – VIP BRODIES Level 1 Upper Tier Padded seats (Block AM1/AM7) 🚐 Akstur til og frá flugvelli í þægilegum 8 manna lúxusbílum 🤝 Premiertrips er í samstarfi við AutoPark! Við bjóðum kúnnum okkar veglegan afslátt af bílastæðum við Leifsstöð – frábær leið til að byrja ferðina stresslaust.

ETA rafræn ferðaheimild til UK

Það er alfarið á ábyrgð farþega að sækja um ETA til að komast inn til Bretlands.

gov.uk
Athugið að Bretland hefur sett fram skilyrði um að allir ferðamenn sem þurfa ekki vegabréfsáritun, verða að framvísa rafrænni ferðaheimild (ETA).
Ríkisborgarar Schengen svæðisins þurfa að hafa vegabréf eða önnur viðurkennd skilríki með í för. Skilríkin þurfa að vera í gildi allan dvalartímann í landinu. Vegabréfsáritun er óþörf.
Við mælum með að fólk sæki UK ETA appið og klári umsóknina og greiðsluna þar í gegn.

Kostnaður

Rafræn ferðaheimild (ETA) kostar £10 á mann.
Það verða ALLIR að sækja um þessa heimild, fullorðnir sem börn. Einn aðili má sækja um fyrir aðra.
Ekki er hægt að fá gjaldið endurgreitt eftir að sótt er um.

Áður en þú byrjar umsókn

Þú þarft að hafa eftirfarandi við hendina:

Vegabréfið sjálft sem þú ferðast með, ekki ljósrit né rafrænt.
Aðgang að netfanginu þínu.
Greiðslukort.

Þú verður beðin(n) um að hlaða upp eða taka mynd af:

Vegabréfinu.
Andlitsmynd af þeim sem sótt er um fyrir.
Þú þarft ekki að slá inn ferðaupplýsingar þínar.
Ef þú getur ekki notað APP þá má sækja um hér.
Almennar upplýsingar um rafrænu ferðaheimildina (ETA) má sjá hér.
Premier Trips