

vs

Liverpool á móti Newcastle
Anfield, Liverpool
30. janúar, 2026 -
2. febrúar, 2026
Sæti : 20
Fararstjórn
Verð
199.900 kr.
-
249.000 kr.
Liverpool vs Newcastle
📅 30. janúar – 2. febrúar 2026
Komdu með í skemmtilega fótboltaferð til Liverpool þar sem heimamenn taka á móti Newcastle United á Anfield!
Ferðin er skipulögð af Premier Trips með lúxus, gæði og þjónustu í fyrirrúmi – frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.
⚔️ Viðureign með mikla spennu
Viðureignir Liverpool og Newcastle hafa í gegnum tíðina verið með þeim markasælustu og mest spennandi í ensku úrvalsdeildinni. Á undanförnum árum hafa þessi lið margsinnis mæst í leikjum þar sem hraði, tilþrif og dramatík hafa verið í forgrunni – þar á meðal stórbrotin mörk á síðustu mínútum og sveiflukennd úrslit.
Newcastle hefur styrkt sig gríðarlega með fjármagni og metnaði og á nú lið fullt af krafti, pressu og gæðum – en Anfield er alltaf erfiður staður fyrir gesti. Liverpool hefur haft yfirhöndina í flestum leikjum síðustu ára, en þurft að hafa fyrir því, þar sem Newcastle hefur oft náð að valda vandræðum með hraða sinn og sóknarleik.
Þetta er leikur sem lofar miklu – tvö metnaðarfull lið, stjörnur á báðum vængjum og tryllt stemning á Anfield.
Upplifðu toppþjónustu og lúxus í þessari frábæru hópaferð með Premier Trips:
👀 Sætin á leiknum – New Anfield Road Stand seating:
Level 1 Upper Tier Padded seats (Block AM1/AM7)
3 klst. aðgangur fyrir leik og 1 klst. eftir leik.
Pre-match complimentary street food.
Drykkur í hálfleik innifalinn (bjór, vín eða gos)
Leikdagsdagskrá innifalin.
Afþreying fyrir leik.
Svo mætir LFC Legend fyrir leik og heilsar upp á stuðningmenn.
199.900 kr. á mann miðað við 2 saman í herbergi
249.900 kr. á mann miðað við einstakling í einbýli
Staðfestingargjald: 50 þúsund per farþega
📌 Lokagreiðsla: 8 vikum fyrir brottför.
✅ Full endurgreiðsla ef ferð fellur niður.
ℹ️ Premier Trips áskilur sér rétt til að breyta, fresta eða fella niður ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki.
Innifalið
✈️ Flug með Iceland Air til og frá Manchester – skattar og gjöld innifalin
🧳 23 kg innritaður farangur + handfarangur
🏨 Gisting í 3 nætur með morgunverði á 4 stjörnu hóteli í miðbæ Liverpool
🎟️ Aðgöngumiði á leikinn Liverpool – Newcastle (VIP Brodies lounge anfield)
🚐 Akstur til og frá flugvelli í þægilegum 8 manna lúxusbílum
👥 Fararstjóri með í ferð
🎁 Glaðningur frá Premier Trips Travel – við kunnum að meta okkar viðskiptavini!
Fararstjóri
Reynir Reynisson

ETA rafræn ferðaheimild til UK
Það er alfarið á ábyrgð farþega að sækja um ETA til að komast inn til Bretlands.

Athugið að Bretland hefur sett fram skilyrði um að allir ferðamenn sem þurfa ekki vegabréfsáritun, verða að framvísa rafrænni ferðaheimild (ETA).
Ríkisborgarar Schengen svæðisins þurfa að hafa vegabréf eða önnur viðurkennd skilríki með í för. Skilríkin þurfa að vera í gildi allan dvalartímann í landinu. Vegabréfsáritun er óþörf.
Við mælum með að fólk sæki UK ETA appið og klári umsóknina og greiðsluna þar í gegn.
Kostnaður
Rafræn ferðaheimild (ETA) kostar £10 á mann.
Það verða ALLIR að sækja um þessa heimild, fullorðnir sem börn. Einn aðili má sækja um fyrir aðra.
Ekki er hægt að fá gjaldið endurgreitt eftir að sótt er um.
Áður en þú byrjar umsókn
Þú þarft að hafa eftirfarandi við hendina:
Vegabréfið sjálft sem þú ferðast með, ekki ljósrit né rafrænt.
Aðgang að netfanginu þínu.
Greiðslukort.
Þú verður beðin(n) um að hlaða upp eða taka mynd af:
Vegabréfinu.
Andlitsmynd af þeim sem sótt er um fyrir.
Þú þarft ekki að slá inn ferðaupplýsingar þínar.
Ef þú getur ekki notað APP þá má sækja um hér.
Almennar upplýsingar um rafrænu ferðaheimildina (ETA) má sjá hér.