Enska úrvalsdeild
vs

Liverpool vs Crystal Palace

15.–18. jan 2027

Pöntun lokar 27. nóvember 2026

Fararstjórn Anfield, Liverpool 3 dagar
Skráð íslensk ferðaskrifstofa Sími 680-0000

Bókun og miðapöntun — að jafnaði þarf að loka bókunum eigi síðar en 27. nóvember 2026 (nákvæmur frestur kemur í tilboði og tölvupósti).

Viltu aðeins miða án flugs og gistings? Skoða staka miða →

Brottför / flug 15. jan Icelandair · Keflavík → Manchester
Heimför / flug 18. jan Manchester → Keflavík
Leikvöllur Anfield Liverpool
Lengd 3 dagar 15. janúar 2027 — 18. janúar 2027
Gisting 3 nætur Novotel Liverpool Centre

Hvað er innifalið

Helstu atriði í pakkanum — nákvæm lýsing kemur í tilboði.

✈️ Flug með Icelandair ásamt 23 kg innritaðri tösku og handfarangri í farþegarými

🚌 Þægileg skutla til og frá flugvelli í 8 manna bílum

🏨 Gisting á glæsilegu 4 stjörnu hóteli á besta stað í Liverpool City Center

🥩 Glæsilegur kvöldverður í boði PremierTrips á flottu steikhúsi í Liverpool

⭐ VIP Hospitality sæti á Anfield (Brodies stand)

🚶‍♂️ Gönguferð með fararstjóra um helstu staði í Liverpool City (ca 2,5 tímar) alls ekki skylda

🎤 Skemmtileg og fagleg fararstjórn alla ferðina fyrir þá sem kjósa

Fararstjóri

Rúnar "Hroði" Geirmundsson

Rúnar „Hroði“ Geirmundsson er sannkallaður kraftpakki sem sameinar reynslu, gleði og einstaka ástríðu fyrir Liverpool. Hann er Ironman-keppandi, söngvari, einkaþjálfari og einn dyggasti Liverpool-maður sem fyrirfinnst. Hroði hefur fylgt Liverpool í gegnum súrt og sætt í áratugi og þekkir sögu félagsins, menninguna og borgina eins og lófann á sér. Ástríðan fyrir félaginu smitar út frá sér og gerir ferðina að enn meiri upplifun fyrir alla sem ferðast með honum. Sem fararstjóri leggur Hroði metnað sinn í að skapa góða stemningu, halda hópnum vel upplýstum og tryggja að allir njóti ferðarinnar til fulls. Með jákvæðni, húmor og mikilli reynslu sér hann til þess að ferðin verði bæði eftirminnileg og skemmtileg.

Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum — aðstoð við leikinn, flug og gistingu, og er í boði þegar eitthvað kemur upp.

Dagskrá

Yfirlit yfir dagana.

Dagur 1 fös 15. jan

Flogið er með Icelandair að morgni föstudags til Manchester. Við lendingu tekur fararstjóri PremierTrips á móti hópnum og tryggir að allt gangi smurt fyrir sig. Hópurinn fer svo beint með þægilegum akstri til Liverpool þar sem komið er á glæsilega Novotel hótelið. Farið er yfir innritun á hótelið og eftir það gefst þeim sem vilja tækifæri á að ganga með fararstjóra PremierTrips um Liverpool. Þar verður miðbærinn skoðaður, og farið yfir hvar helstu verslanir og veitingastaðir eru og skoðaðir áhugaverða staðir og fólk fær betri tilfinningu fyrir þessari einstöku fótbolta borg.

Dagur 2 lau 16. jan

Dagurinn sem allir bíða eftir er kominn! Við förum á Anfield þar sem Liverpool tekur á móti Crystal Palace. Upplifðu einstaka stemningu, stuðningsmennina, söngvana og allt það sem gerir leikdag á Anfield að einni magnaðustu upplifun í fótboltaheiminum (Uber tekur ca 25 mín). Um kvöldið býður PremierTrips þeim sem vilja að koma saman út að borða á magnaða Bem Brasil sem er frábær all you can eat steikhús þar sem góður matur og góður félagsskapur fara saman. 🥩

Dagur 3 sun 17. jan

Fararstjóri með þá sem bókað hafa skoðunarferðina á Anfield. Við skoðum völlinn, göngum um svæðið í kringum Anfield, sjáum sögulegar myndir á veggjunum, heimsækjum Jota vegginn og upplifum andrúmsloftið í kringum heimavöll Liverpool. Farið verður yfir skemmtilegar og sjaldheyrðar sögur af liðinu, leikmönnum og stuðningsmönnum sem gera Liverpool að einu þekktasta félagi heims.

Dagur 4 mán 18. jan

Eftir frábæra helgi er komið að heimferð. Við sækjum hópinn við Novotel hótelið og skutlum beint upp á Manchester Airport þar sem allir halda heim með fullt af minningum.

Leikvöllur, hótel og ferðaupplýsingar

Skýr yfirsýn yfir staðsetningu, gistingu og hagnýt atriði fyrir ferðina þína.

Leikdagur

Leikvöllur

Anfield

„You'll Never Walk Alone" er sungið af stuðningsmönnum fyrir hvern einasta heimaleik – eitt áhrifamesta augnablik ensks fótbolta, með um 61.000 sæti.

Meira sem gott er að vita

Brottför Keflavík → Manchester
Heimför Manchester → Keflavík
Lengd ferðar 3 dagar / 3 nætur
Leikvöllur Anfield, Liverpool
Hótel United Kingdom, Liverpool, Hanover St, Merseyside
Flugvöllur → hótel 1 hour 0 mins (55.7 km)
Hótel → leikvöllur 29 mins (6.1 km)
Fararstjórn Innifalin

Praktísk atriði fyrir ferðina

ETA fyrir Bretland

Íslenskir ferðamenn þurfa almennt ETA til að ferðast til Bretlands. Sæktu um tímanlega áður en þú ferð.

Sækja um ETA hjá GOV.UK →

Afpöntunarskilmálar

Afpöntunarskilmálar geta verið mismunandi eftir flugi, hóteli og miðum. Við sendum skilmála skýrt áður en pöntun er staðfest.

Skoða skilmála →

Vantar sérsniðna ferð?

Viltu lengja ferð, velja sérstök sæti eða bæta við aukanóttum? Við sníðum pakkann fyrir þig.

Senda fyrirspurn →

Kort af svæðinu

Hótel, leikvöllur og samgöngur á einu svæði. Göngutími og leiðir sjást í korti.

Algengar spurningar um ferðina

Get ég valið sæti?

Í hópaferðum erum við með fyrirfram bókuð sæti fyrir hópinn á mjög góðum stöðum á vellinum. Að sjálfsögðu er hægt að uppfæra sætin ef óskað er eftir betri sætum en þeim sem eru innifalin í pakkanum, allt eftir framboði frá vellinum. Ferðafélaga saman í herbergi setja alltaf hlið við hlið á vellinum. Í flestum tilfellum náum við að koma vinahópum og stórfjölskyldum saman.

Hvað ef leik er frestað?

Ef dagsetning breytist höfum við samband og förum yfir valkosti með þér. Við aðstoðum með breytingar eftir reglum flugfélaga og birgja.

Þarf ég ETA fyrir Bretland?

Já, flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Við mælum með að sækja um með góðum fyrirvara.

Get ég framlengt ferðina?

Já, í mörgum tilvikum er hægt að bæta við aukanóttum. Sendu okkur fyrirspurn og við stillum ferðina eftir þínum óskum.

Hver telst barn við verðlagningu?

Börn teljast 15 ára og yngri; fullorðnir teljast 16 ára og eldri. Barngjald gildir aðeins þegar slík verðflokkun er í boði hjá birgja.

Borgar barngjald líka fyrir miða?

Barngjald gildir fyrir börn 15 ára og yngri, aðeins þegar slík verðflokkun er í boði hjá birgja. Nákvæm sundurliðun kemur fram í bókunarferli eða tilboði.