‹ Til baka

Hafa samband

Við hjálpum þér með hópaferðir, pakkaferðir, miða og almennar fyrirspurnir. Sendu línu hér að neðan eða hringdu, við erum til staðar.

Sendu okkur línu

Við svörum öllum fyrirspurnum innan sólarhrings á virkum dögum.

Efni *

Algengar spurningar

Hér eru svör við þremur algengustu spurningunum sem við fáum. Kannski finnur þú svarið strax.

Getum við setið saman?

Við stefnum að því að hópurinn sitji saman. Fyrir tvo til fjóra er það venjulega hlið við hlið; fyrir fimm eða fleiri er reynt að koma öllum í sama hólf, en því er ekki hægt að lofa fyrirfram.

Hvað gerist ef leikdagur eða leiktími breytist?

Leikdagar og leiktímar geta breyst vegna sjónvarpsútsendinga, þátttöku liða í öðrum keppnum eða annarra aðstæðna. Dagsetning og tími við kaup eru því birt með fyrirvara um breytingar, sem geta orðið með stuttum fyrirvara. Laugardagsleikir stóru liða geta sérstaklega færst á sunnudag vegna sjónvarpsútsendinga þar til mótshaldari hefur staðfest dagsetningu og tíma. PremierTrips mælir þá með heimferð á mánudegi. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að velja heimferðardag með tilliti til þeirrar áhættu. Kaupandi ber ábyrgð á að fylgjast með staðfestri leikjadagskrá á opinberri vefsíðu viðkomandi félags eða keppni. Ekki er hægt að treysta á að sérstök tilkynning berist frá PremierTrips. Þegar dagsetning er staðfest gildir sú dagsetning. Færist leikur eftir það gildir miðinn á nýjum leikdegi samkvæmt reglum mótshaldara eða miðaveitanda. Breyting á leikdegi eða leiktíma veitir ekki sjálfkrafa rétt til endurgreiðslu eða skipta. Þetta skerðir þó ekki ófrávíkjanleg réttindi kaupanda samkvæmt lögum, þ.m.t. lögum nr. 95/2018 um pakkaferðir þegar kaup í Bókunarvélinni teljast pakkaferð.

Hvenær fæ ég miðann?

Miðar eru afhentir rafrænt í gegnum WhatsApp. Miðar eru alla jafna afhentir deginum fyrir viðburð en ef þeir hafa ekki borist a.m.k. 6 klst fyrir viðburð endilega heyrðu í okkur.

Allar spurningar og svör →