Enska úrvalsdeild
vs

Man United vs Arsenal

26. feb – 1. mar 2027

Pöntun lokar 8. janúar 2027

Fararstjórn Old Trafford, Manchester 3 dagar
Skráð íslensk ferðaskrifstofa Sími 680-0000

Bókun og miðapöntun — að jafnaði þarf að loka bókunum eigi síðar en 8. janúar 2027 (nákvæmur frestur kemur í tilboði og tölvupósti).

Viltu aðeins miða án flugs og gistings? Skoða staka miða →

Brottför / flug 26. feb easyJet · Keflavík → Manchester
Heimför / flug 1. mar Manchester → Keflavík
Leikvöllur Old Trafford Manchester
Lengd 3 dagar 26. febrúar 2027 — 1. mars 2027
Gisting 3 nætur Radisson Hotel Manchester City Centre, A Verified Net Zero Hotel

Hvað er innifalið

Helstu atriði í pakkanum — nákvæm lýsing kemur í tilboði.

✈️ Flug

skattar og gjöld innifalin

🧳 10kg handfarangur + Bakpoki

🚐 Akstur til og frá flugvelli í þægilegum 8 manna lúxusbílum

🏨 Gisting í 3 nætur með morgunverði á Radisson net zero 4 stjörnu hótel í miðbæ Manchester

🎟️ Aðgöngumiði á leikinn Manchester United

Arsenal (A+ sæti meðfram miðjum vellinum niðri)

👥 Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum

sér um skipulag, aðstoð og að gera ferðina sem þægilegasta

🥩 Glæsilegur kvöldverður í boði PremierTrips á flottu steikhúsi í Manchester

Fararstjóri

Ívar Daníels

Ívar hefur ferðast víða og þekkir ensku úrvalsdeildaleikvangana betur en flestir. Hann kemur alltaf vel undirbúinn og veit hvar bestu staðirnir eru.

Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum — aðstoð við leikinn, flug og gistingu, og er í boði þegar eitthvað kemur upp.

Dagskrá

Yfirlit yfir dagana.

Dagur 1 fös 26. feb

Flogið er með EasyJet að morgni föstudags til Manchester. Við lendingu tekur fararstjóri PremierTrips á móti hópnum og tryggir að allt gangi vel og skipulega fyrir sig. Að því loknu heldur hópurinn með þægilegum akstri inn í miðbæ Manchester þar sem gist verður á hinu glæsilega Radisson Hotel. Þegar hópurinn hefur komið sér fyrir á hótelinu tekur fararstjóri á móti þeim sem vilja í anddyri hótelsins og býður upp á göngutúr um miðbæ Manchester þar sem farið verður yfir helstu svæði borgarinnar, vinsælar verslanir, veitingastaði og áhugaverða staði. Einnig býðst fararstjóri til að fara með hópnum á Old Trafford Megastore þar sem hægt verður að versla treyjur, minjagripi og annað tengt Manchester United – fullkomin upphitun fyrir leikinn daginn eftir.

Dagur 2 lau 27. feb

Leikdagur! Fararstjóri tekur á móti hópnum í anddyri hótelsins og verður farið yfir skipulag ferðarinnar að Old Trafford. Hópurinn verður fluttur með þægilegum akstri að vellinum. Fyrir þá sem vilja verður einnig boðið upp á að heimsækja hinn sögufræga Bishop Blaize – vinsælan stað meðal stuðningsmanna Manchester United þar sem stemningin fyrir leik er mikil, söngvar óma og stuðningsmenn hita upp fyrir stórleikinn. Þetta er að sjálfsögðu valfrjálst og fyrir þá sem vilja upplifa ekta enska fótboltastemningu. Að lokinni upphitun er gengið saman að Old Trafford þar sem Manchester United tekur á móti Arsenal í sannkölluðum stórleik. Um kvöldið býður PremierTrips þeim sem vilja að koma saman út að borða á magnaða Bem Brasil sem er frábær all you can eat steikhús þar sem góður matur og góður félagsskapur fara saman. 🥩

Dagur 3 sun 28. feb

Í boði verður skoðunarferð um Old Trafford, sem er einstök upplifun fyrir alla fótboltaunnendur. Farið verður yfir sögu félagsins, leikmannaklefar skoðaðir og einnig heimsótt svæði sem almenningur fær sjaldan að sjá, þar á meðal VIP svæðið þar sem stórmenni á borð við Sir Alex Ferguson hafa notið leikdagsins. Eftir skoðunarferðina verður stefnan sett á Trafford Centre verslunarmiðstöðina fyrir þá sem vilja nýta tækifærið til verslunar eða skoðunar. Að sjálfsögðu er þetta valfrjálst og fararstjóri fer með þeim sem vilja.

Dagur 4 mán 1. mar

Eftir frábæra helgi í Manchester er komið að heimför. Hópurinn verður sóttur á hótelið og ekið út á Manchester Airport þar sem flogið verður heim með fullt af frábærum minningum úr ógleymanlegri fótboltaferð.

Leikvöllur, hótel og ferðaupplýsingar

Skýr yfirsýn yfir staðsetningu, gistingu og hagnýt atriði fyrir ferðina þína.

Leikdagur

Leikvöllur

Old Trafford

Stærsti félagsliðavöllur Englands og oft kallaður „The Theatre of Dreams", með um 74.300 sæti.

Gisting

Radisson Hotel Manchester City Centre, A Verified Net Zero Hotel

Radisson Hotel Manchester City Centre, A Verified Net Zero Hotel

Google einkunn: 4.1 ★ (2611 umsagnir)

Mynd: Radisson Hotel Manchester City Centre, A Verified Net Zero Hotel

Sjá hótel á Google Maps → Vefsíða hótels →

Meira sem gott er að vita

Brottför Keflavík → Manchester
Heimför Manchester → Keflavík
Lengd ferðar 3 dagar / 3 nætur
Leikvöllur Old Trafford, Manchester
Hótel 4 Cheetham Hill Rd, Cheetham Hill, Manchester M4 4EW, UK
Flugvöllur → hótel 3 mins (0.5 km)
Hótel → leikvöllur 30 mins (5.3 km)
Fararstjórn Innifalin

Praktísk atriði fyrir ferðina

ETA fyrir Bretland

Íslenskir ferðamenn þurfa almennt ETA til að ferðast til Bretlands. Sæktu um tímanlega áður en þú ferð.

Sækja um ETA hjá GOV.UK →

Afpöntunarskilmálar

Afpöntunarskilmálar geta verið mismunandi eftir flugi, hóteli og miðum. Við sendum skilmála skýrt áður en pöntun er staðfest.

Skoða skilmála →

Vantar sérsniðna ferð?

Viltu lengja ferð, velja sérstök sæti eða bæta við aukanóttum? Við sníðum pakkann fyrir þig.

Senda fyrirspurn →

Kort af svæðinu

Hótel, leikvöllur og samgöngur á einu svæði. Göngutími og leiðir sjást í korti.

Algengar spurningar um ferðina

Get ég valið sæti?

Í hópaferðum erum við með fyrirfram bókuð sæti fyrir hópinn á mjög góðum stöðum á vellinum. Að sjálfsögðu er hægt að uppfæra sætin ef óskað er eftir betri sætum en þeim sem eru innifalin í pakkanum, allt eftir framboði frá vellinum. Ferðafélaga saman í herbergi setja alltaf hlið við hlið á vellinum. Í flestum tilfellum náum við að koma vinahópum og stórfjölskyldum saman.

Hvað ef leik er frestað?

Ef dagsetning breytist höfum við samband og förum yfir valkosti með þér. Við aðstoðum með breytingar eftir reglum flugfélaga og birgja.

Þarf ég ETA fyrir Bretland?

Já, flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Við mælum með að sækja um með góðum fyrirvara.

Get ég framlengt ferðina?

Já, í mörgum tilvikum er hægt að bæta við aukanóttum. Sendu okkur fyrirspurn og við stillum ferðina eftir þínum óskum.

Hver telst barn við verðlagningu?

Börn teljast 15 ára og yngri; fullorðnir teljast 16 ára og eldri. Barngjald gildir aðeins þegar slík verðflokkun er í boði hjá birgja.

Borgar barngjald líka fyrir miða?

Barngjald gildir fyrir börn 15 ára og yngri, aðeins þegar slík verðflokkun er í boði hjá birgja. Nákvæm sundurliðun kemur fram í bókunarferli eða tilboði.