‹ Allar hópaferðir
HÓPAFERÐ · FARARSTJÓRN ENSKI BOLTINN

Man United –
Coventry City

📍 Old Trafford, Manchester · 📅 4.–7. desember 2026 · 3 nætur
Flug frá Keflavík · hótel · miði · íslensk fararstjórn

BROTTFÖR
4. des · Keflavík
easyJet
LEIKUR
5. des
kl. 15:00
HEIMFERÐ
7. des · Manchester
easyJet
LENGD
3 nætur, 4 dagar
Brottför til heimkomu

Nákvæmir flugtímar eru staðfestir síðar og sendast með bókunarstaðfestingu.

Lýsing

Flogið er með EasyJet að morgni föstudags til Manchester. Við lendingu tekur bílstjóri á móti hópnum á flugvellinum og ekur beint á hótelið þar sem gist verður í miðborg Manchester. Eftir innritun gefst ferðalöngum góður tími til að skoða borgina á eigin vegum. Manchester er lífleg borg með frábæru úrvali verslana, veitingastaða, kaffihúsa og skemmtistaða. Fyrir knattspyrnuunnendur er víða að finna staði sem tengjast ríkri sögu ensku knattspyrnunnar og borgin býður upp á einstaka stemningu allan daginn.

Dagurinn sem allir hafa beðið eftir er loksins kominn. Manchester United leikur á Old Trafford þar sem þið fáið tækifæri til að upplifa einn þekktasta leikvang heims. Stemningin fyrir leik, söngvar stuðningsmanna og andrúmsloftið á leikdegi gera heimsókn á Old Trafford að upplifun sem lengi verður í minnum höfð. Auðvelt er að komast á leikvanginn með almenningssamgöngum eða leigubíl frá hótelinu.

Dagurinn er tilvalinn til að njóta Manchester enn betur. Þeir sem hafa bókað skoðunarferð um Old Trafford geta kynnst sögu félagsins, skoðað búningsklefana, gengið út að vellinum og heimsótt safnið. Aðrir geta nýtt daginn til að versla, heimsækja söfn, skoða Northern Quarter eða slaka á á einum af fjölmörgum veitingastöðum og kaffihúsum borgarinnar.

Eftir frábæra helgi er komið að heimferð. Hópurinn er sóttur við hótelið og ekið beint á Manchester Airport fyrir flugið heim með fullt af góðum minningum úr skemmtilegri fótboltaferð.

Innifalið í ferðinni

  • Flug — skattar og gjöld innifalin Handfarangur + Bakpoki/Taska
  • Akstur til og frá flugvelli
  • Gisting í 3 nætur Með morgunverði og Spa aðstöðu
  • Fararstjóri á vegum PremierTrips
  • 4 stjörnu hótel
  • PremierTrips-gjöf
  • Miði á leikinn
  • Skoðunarferð um borgina
  • Kvöldverður í boði PremierTrips

Dagskrá

04 des
Flogið er með EasyJet að morgni föstudags til Manchester Brottför

Við lendingu tekur bílstjóri á móti hópnum á flugvellinum og ekur beint á hótelið þar sem gist verður í miðborg Manchester. Eftir innritun gefst ferðalöngum góður tími til að skoða borgina á eigin vegum. Manchester er lífleg borg með frábæru úrvali verslana, veitingastaða, kaffihúsa og skemmtistaða. Fyrir knattspyrnuunnendur er víða að finna staði sem tengjast ríkri sögu ensku knattspyrnunnar og borgin býður upp á einstaka stemningu allan daginn.

05 des
Dagurinn sem allir hafa beðið eftir er loksins kominn Leikdagur

Manchester United leikur á Old Trafford þar sem þið fáið tækifæri til að upplifa einn þekktasta leikvang heims. Stemningin fyrir leik, söngvar stuðningsmanna og andrúmsloftið á leikdegi gera heimsókn á Old Trafford að upplifun sem lengi verður í minnum höfð. Auðvelt er að komast á leikvanginn með almenningssamgöngum eða leigubíl frá hótelinu.

06 des
Dagurinn er tilvalinn til að njóta Manchester enn betur Frjáls dagur

Þeir sem hafa bókað skoðunarferð um Old Trafford geta kynnst sögu félagsins, skoðað búningsklefana, gengið út að vellinum og heimsótt safnið. Aðrir geta nýtt daginn til að versla, heimsækja söfn, skoða Northern Quarter eða slaka á á einum af fjölmörgum veitingastöðum og kaffihúsum borgarinnar.

07 des
Eftir frábæra helgi er komið að heimferð Heimferð

Hópurinn er sóttur við hótelið og ekið beint á Manchester Airport fyrir flugið heim með fullt af góðum minningum úr skemmtilegri fótboltaferð.

Fararstjóri

Sigurður Ingi Sigurðsson

Sigurður Ingi er nýr fararstjóri hjá PremierTrips og sannkallaður Manchester-sérfræðingur. Hann er harður Manchester United-maður og hefur farið í um 70 ferðir til Manchester. Fáir þekkja borgina betur en hann – hvort sem um er að ræða Old Trafford, áhugaverða staði, góða veitingastaði eða sögur sem leynast á bak við borgina. Sigurður hefur einnig mikinn áhuga á sögu Manchester United og getur því frætt ferðalanga um félagið, goðsagnirnar og stóru augnablikin sem hafa mótað sögu þess. Með mikilli reynslu, léttu lundinni og góðri nærveru leggur hann sitt af mörkum til að gera hverja ferð skemmtilega, fróðlega og eftirminnilega. Og svo má auðvitað ekki gleyma því að Sigurður Ingi er fyrrverandi fyndnasti maður Suðurlands – að minnsta kosti samkvæmt honum sjálfum og mögulega einhverjum öðrum sem voru viðstaddir.

Miðar og aðstaða

Sæti í A+ flokki í Sir Alex Ferguson Stand, á neðri hæð við miðlínu. Þetta eru mjög góð sæti með skýru útsýni yfir allan völlinn og leikinn í heild. Innifalið er aðgangur að leiknum og almennri aðstöðu á Old Trafford, þar á meðal veitingasölu og salernum.

Miðar og aðstaða, mynd 1
Miðar og aðstaða, mynd 2
Miðar og aðstaða, mynd 3

Algengar spurningar

ETA til Bretlands

Flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Það er á ábyrgð farþega að sækja um. Leiðbeiningar berast í staðfestingarpósti.

Ferðatrygging

Við mælum með ferðatryggingu sem nær yfir afbókun, sjúkrakostnað og farangur. Trygging er ekki innifalin í ferðinni.

Sérþarfir

Láttu okkur vita við bókun ef einhver í hópnum þarf aðstoð, sérfæði eða aðgengi. Við reynum að koma til móts við það eftir framboði.

Staðfestingargjald
Frestun leiks

Gisting og staðsetning

Radisson Hotel Manchester City Centre, A Verified Net Zero Hotel · 4★

Google-einkunn 4.1 (2642 umsagnir). Gisting í 3 nætur

Radisson Hotel Manchester City Centre, A Verified Net Zero Hotel, mynd 1
Radisson Hotel Manchester City Centre, A Verified Net Zero Hotel, mynd 2
Radisson Hotel Manchester City Centre, A Verified Net Zero Hotel, mynd 3

Bara miðinn á leikinn?

Stakir miðar ef þú skipuleggur flug og hótel á eigin vegum.

Skoða staka miða

Umsagnir frá ferðafélögum

Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips

“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”

Steinar Haralds
Klikkaðir miðar

“Klikkaðir miðar á flottu verði”

anton örn

Sjá allar umsagnir

149.900 kr. á mann Bókun lokar 16. október 2026
Bóka ferð