Tryggt aðgengi
Við hjálpum þér að komast á leiki, tónleika og aðra viðburði, með skýrum kostum og raunhæfum væntingum.
UM OKKUR
PremierTrips er íslensk ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í ferðum og miðum á stærstu íþrótta- og skemmtiviðburði heims. Fótboltaferðir til Englands eru rótin okkar — við bjóðum bæði hópaferðir með fararstjóra og miðasölu á leiki í ensku úrvalsdeildinni og fleiri keppnum.
Markmið okkar er að gera drauma aðdáenda að veruleika, hvort sem þú vilt upplifa leikvang, tónleikasal eða aðra stóra upplifun. Fótboltaferðir til Englands eru rótin okkar — við sjáum um skipulagið frá A til Ö.
Við erum með starfsstöð á Selfossi og þjónum viðskiptavinum um allt land.
Við hjálpum þér að komast á leiki, tónleika og aðra viðburði, með skýrum kostum og raunhæfum væntingum.
Flug, hótel, miðar og oft íslenskur fararstjóri, þú færð skýrt yfirlit yfir hvað er innifalið í hverri ferð.
Lítill hópur, persónuleg þjónusta. Við þekkjum viðskiptavini okkar á nafn.
Fararstjórar okkar og aðrir starfsmenn eru sjálfir ástríðufullir aðdáendur sem vita hvað þarf til.
Fararstjórar okkar og aðrir starfsmenn eru valdir sérstaklega fyrir ástríðu sína fyrir íþróttir, tónlist og reynslu af ferðalögum.
AÐALFARARSTJÓRI
Reynir hefur stýrt ferðum til Englands í mörg ár og þekkir Liverpool eins og lófann á sér. Anfield upplifunin er honum í blóð borin.
FARARSTJÓRI
Simmi er þekktur stuðningsmaður og tekur hópinn sinn með sér inn í andrúmsloftið. Fjör og gleði eru alltaf í fyrirrúmi þegar Simmi er við stjórnvölinn.
FARARSTJÓRI
Við erum afar ánægð að hafa Ívar Daníel með okkur sem fararstjóra hjá PremierTrips. Ívar er reynslumikill fararstjóri, skemmtikraftur og tónlistarmaður sem hefur ferðast víða um Evrópu og kynnst ensku úrvalsdeildinni af eigin raun. Hann þekkir leikvangana, borgirnar og stemninguna í kringum leikina einstaklega vel og er alltaf vel undirbúinn fyrir hverja ferð. Ívar leggur metnað í að gera upplifun ferðalanganna sem besta og veit nákvæmlega hvar er að finna bestu staðina til að borða, skemmta sér og njóta þess sem hver borg hefur upp á að bjóða.
FARARSTJÓRI
Ási Guðni er útvarpsmaður og skemmtikraftur sem flestir kannast við. Hann er þekktur fyrir létta lund, skemmtilegan húmor og hefur á undanförnum árum skapað sér sterkan sess sem einn vinsælasti skemmtikraftur landsins. Með Ása Guðna sem fararstjóra má búast við frábærri stemningu frá upphafi til enda. Hann hefur einstakt lag á að ná fólki saman og gera góða ferð enn betri með húmor, góðum sögum og skemmtilegum félagsskap.
FARARSTJÓRI
Það er óhætt að segja að Liverpool eigi stóran stað í hjarta Birkis Vagns Ómarssonar. Hann hefur fylgt liðinu í gegnum súrt og sætt, farið ótal sinnum á Anfield og þekkir borgina og stemninguna sem fylgir leikdegi eins og lófann á sér. Birkir hefur gaman af því að deila reynslu sinni og uppáhaldsstöðunum sínum með ferðafélögum. Hvort sem það er að finna rétta pöbbinn fyrir leik, skoða borgina eða njóta stemningarinnar í kringum Anfield, þá veit hann nákvæmlega hvað gerir Liverpool-ferð eftirminnilega. Með Birki sem fararstjóra færðu ekki bara leiðsögn – heldur ferð með manni sem hefur einlæga ástríðu fyrir Liverpool, borginni og öllu sem henni fylgir.
FARARSTJÓRI
Við erum virkilega ánægð að fá Egil Ploder, útvarps og tónlistarmann, í hóp fararstjóra hjá PremierTrips. Egill er einn af þekktustu stuðningsmönnum Liverpool á Íslandi og hefur fylgt félaginu af mikilli ástríðu í gegnum árin. Fyrir honum snýst Liverpool ekki bara um fótbolta heldur einnig söguna, menninguna og einstöku stemninguna sem fylgir borginni og Anfield. Sem fararstjóri leggur Egill áherslu á að allir njóti ferðarinnar, hvort sem um er að ræða fyrstu heimsókn á Anfield eða þá tíundu. Með góðu skapi, húmor og mikilli þekkingu á Liverpool skapar hann frábæra stemningu og gerir upplifunina enn eftirminnilegri. Með Agli sem fararstjóra færðu ekki aðeins ferð á leik heldur ferð með manni sem lifir og hrærist í Liverpool og hefur einstaka ánægju af því að deila þeirri upplifun með öðrum stuðningsmönnum.
FARARSTJÓRI
Jón Sigurðsson er sannkallaður Liverpool-nörd, fyrrverandi íþróttastjóri, tónlistarmaður og Idol-stjarna. Hann er mikill stemningsmaður og hefur einstakt lag á því að skapa góða orku og gleði í hópnum. Jón leggur metnað í að farþegar njóti ferðarinnar til fulls, hvort sem það er á Anfield, í Liverpool-borg eða með hópnum sjálfum. Með reynslu sinni, húmor og miklum Liverpool-áhuga er Jón frábær fararstjóri fyrir þá sem vilja upplifa Liverpool á skemmtilegan og eftirminnilegan hátt.
FARARSTJÓRI
Sigurður Ingi er nýr fararstjóri hjá PremierTrips og sannkallaður Manchester-sérfræðingur. Hann er harður Manchester United-maður og hefur farið í um 70 ferðir til Manchester. Fáir þekkja borgina betur en hann – hvort sem um er að ræða Old Trafford, áhugaverða staði, góða veitingastaði eða sögur sem leynast á bak við borgina. Sigurður hefur einnig mikinn áhuga á sögu Manchester United og getur því frætt ferðalanga um félagið, goðsagnirnar og stóru augnablikin sem hafa mótað sögu þess. Með mikilli reynslu, léttu lundinni og góðri nærveru leggur hann sitt af mörkum til að gera hverja ferð skemmtilega, fróðlega og eftirminnilega. Og svo má auðvitað ekki gleyma því að Sigurður Ingi er fyrrverandi fyndnasti maður Suðurlands – að minnsta kosti samkvæmt honum sjálfum og mögulega einhverjum öðrum sem voru viðstaddir.
FARARSTJÓRI
Við hjá PremierTrips erum afar stolt af samstarfi okkar við Simon Davies einn af okkar traustustu samstarfsaðilum í Liverpool. Simon er fæddur og uppalinn í borginni og þekkir hana út og inn, allt frá helstu kennileitum til falinna staða sem aðeins heimamenn vita um. Simon starfar einnig mikið í kringum Liverpool FC og sér reglulega um akstur fyrir leikmenn félagsins og annað starfsfólk tengt klúbbnum. Þessi reynsla og traust sem honum er sýnt segir sitt um fagmennsku hans og áreiðanleika. Þegar þú ferðast með PremierTrips eru miklar líkur á að Simon taki á móti hópnum á flugvellinum og sjái um aksturinn. Hann leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi þjónustu og deilir gjarnan fróðleik og sögum um Liverpool, borgina sem hann elskar og þekkir betur en flestir. Það er okkur sönn ánægja að hafa Simon sem hluta af teyminu okkar og við erum sannfærð um að viðskiptavinir PremierTrips muni fljótt skilja hvers vegna hann nýtur jafn mikillar virðingar og trausts í Liverpool.
Meðaleinkunn af umsögnum á Google. +7.000 viðskiptavinir hafa ferðast með okkur.
★★★★★Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips
Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.
★★★★★Klikkaðir miðar
Klikkaðir miðar á flottu verði
★★★★★Excellent service
Took my son to his first ever Liverpool game today thanks to this company. Service was excellent and quick to respond to any enquiries that I had. Hospitality was amazing and seats were excellent. I would recommend this service to anyone who wants to attend games in the future 100%.
★★★★★Geggjuð ferð, Liverpool v. Bournemouth
Geggjuð ferð að baki og allt uppá 10.5. Mjög gott skipulag og frábær fararstjórn hjá þeim. Liverpool Vs Bournemouth var geggjuð upplifun. Mæli 110% með ferðum hjá þeim og er að plana aðra ferð með þeim í vor :)
Við svörum öllum fyrirspurnum á virkum dögum. Hringdu, sendu póst eða líttu við á Selfossi.