LeikdagurLeikvöllur
Old Trafford
Stærsti félagsliðavöllur Englands og oft kallaður „The Theatre of Dreams", með um 74.300 sæti.
vs 
22.–25. jan 2027
Pöntun lokar 4. desember 2026
Bókun og miðapöntun — að jafnaði þarf að loka bókunum eigi síðar en 4. desember 2026 (nákvæmur frestur kemur í tilboði og tölvupósti).
Viltu aðeins miða án flugs og gistings? Skoða staka miða →
Helstu atriði í pakkanum — nákvæm lýsing kemur í tilboði.
skattar og gjöld innifalin
sér um skipulag, aðstoð og að gera ferðina sem þægilegasta
við kunnum að meta okkar viðskiptavini!
veglegur afsláttur af bílastæðum við Leifsstöð, frábær leið til að byrja ferðina stresslaust
Ási Guðni er útvarpsmaður og skemmtikraftur sem flestir kannast við. Hann er þekktur fyrir létta lund, skemmtilegan húmor og hefur á undanförnum árum skapað sér sterkan sess sem einn vinsælasti skemmtikraftur landsins. Með Ása Guðna sem fararstjóra má búast við frábærri stemningu frá upphafi til enda. Hann hefur einstakt lag á að ná fólki saman og gera góða ferð enn betri með húmor, góðum sögum og skemmtilegum félagsskap.
Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum — aðstoð við leikinn, flug og gistingu, og er í boði þegar eitthvað kemur upp.
Yfirlit yfir dagana.
Flogið er með Easy Jet að morgni föstudags til Manchester. Við lendingu tekur fararstjóri PremierTrips á móti hópnum og tryggir að allt gangi vel og skipulega fyrir sig. Að því loknu heldur hópurinn með þægilegum akstri inn í miðbæ Manchester þar sem gist verður á hinu glæsilega Radisson Hotel. Þegar hópurinn hefur komið sér fyrir á hótelinu tekur fararstjóri á móti þeim sem vilja í anddyri hótelsins og býður upp á göngutúr um miðbæ Manchester þar sem farið verður yfir helstu svæði borgarinnar, vinsælar verslanir, veitingastaði og áhugaverða staði. Einnig býðst fararstjóri til að fara með hópnum á Old Trafford Megastore þar sem hægt verður að versla treyjur, minjagripi og annað tengt Manchester United – fullkomin upphitun fyrir leikinn daginn eftir.
Leikdagur! Fararstjóri tekur á móti hópnum í anddyri hótelsins og verður farið yfir skipulag ferðarinnar að Old Trafford. (akstur ekki innifalinn) Fyrir þá sem vilja verður einnig boðið upp á að heimsækja hinn sögufræga Bishop Blaize – vinsælan stað meðal stuðningsmanna Manchester United þar sem stemningin fyrir leik er mikil, söngvar óma og stuðningsmenn hita upp fyrir stórleikinn. Þetta er að sjálfsögðu valfrjálst og fyrir þá sem vilja upplifa ekta enska fótboltastemningu. Að lokinni upphitun er gengið saman að Old Trafford þar sem Manchester United tekur á móti erkifjendunum í Liverpool í sannkölluðum stórleik. Um kvöldið býður PremierTrips þeim sem vilja að koma saman út að borða á magnaða Bem Brasil sem er frábær all you can eat steikhús þar sem góður matur og góður félagsskapur fara saman. 🥩
Í boði verður skoðunarferð um Old Trafford, sem er einstök upplifun fyrir alla fótboltaunnendur. Farið verður yfir sögu félagsins, leikmannaklefar skoðaðir og einnig heimsótt svæði sem almenningur fær sjaldan að sjá, þar á meðal VIP svæðið þar sem stórmenni á borð við Sir Alex Ferguson hafa notið leikdagsins. Eftir skoðunarferðina verður stefnan sett á Trafford Centre verslunarmiðstöðina fyrir þá sem vilja nýta tækifærið til verslunar eða skoðunar. Að sjálfsögðu er þetta valfrjálst og fararstjóri fer með þeim sem vilja. Um kvöldið verður farastjórinn með skemmtilegt pubquiz á hótelinu þar sem hægt verður að vinna flottan vinning frá PremierTrips.
Eftir frábæra helgi í Manchester er komið að heimför. Hópurinn verður sóttur á hótelið og ekið út á Manchester Airport þar sem flogið verður heim með fullt af frábærum minningum úr ógleymanlegri fótboltaferð.
Skýr yfirsýn yfir staðsetningu, gistingu og hagnýt atriði fyrir ferðina þína.
LeikdagurLeikvöllur
Stærsti félagsliðavöllur Englands og oft kallaður „The Theatre of Dreams", með um 74.300 sæti.
Gisting
Radisson Hotel Manchester City Centre, A Verified Net Zero Hotel
Google einkunn: 4.1 ★ (2629 umsagnir)
Mynd: Radisson Hotel Manchester City Centre, A Verified Net Zero Hotel
Sjá hótel á Google Maps → Vefsíða hótels →Íslenskir ferðamenn þurfa almennt ETA til að ferðast til Bretlands. Sæktu um tímanlega áður en þú ferð.
Sækja um ETA hjá GOV.UK →Afpöntunarskilmálar geta verið mismunandi eftir flugi, hóteli og miðum. Við sendum skilmála skýrt áður en pöntun er staðfest.
Skoða skilmála →Viltu lengja ferð, velja sérstök sæti eða bæta við aukanóttum? Við sníðum pakkann fyrir þig.
Senda fyrirspurn →Hótel, leikvöllur og samgöngur á einu svæði. Göngutími og leiðir sjást í korti.
Í hópaferðum erum við með fyrirfram bókuð sæti fyrir hópinn á mjög góðum stöðum á vellinum. Að sjálfsögðu er hægt að uppfæra sætin ef óskað er eftir betri sætum en þeim sem eru innifalin í pakkanum, allt eftir framboði frá vellinum. Ferðafélaga saman í herbergi setja alltaf hlið við hlið á vellinum. Í flestum tilfellum náum við að koma vinahópum og stórfjölskyldum saman.
Ef dagsetning breytist höfum við samband og förum yfir valkosti með þér. Við aðstoðum með breytingar eftir reglum flugfélaga og birgja.
Já, flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Við mælum með að sækja um með góðum fyrirvara.
Já, í mörgum tilvikum er hægt að bæta við aukanóttum. Sendu okkur fyrirspurn og við stillum ferðina eftir þínum óskum.
Börn teljast 15 ára og yngri; fullorðnir teljast 16 ára og eldri. Barngjald gildir aðeins þegar slík verðflokkun er í boði hjá birgja.
Barngjald gildir fyrir börn 15 ára og yngri, aðeins þegar slík verðflokkun er í boði hjá birgja. Nákvæm sundurliðun kemur fram í bókunarferli eða tilboði.
Aðrar ferðir sem gætu hentað þér.