Enska úrvalsdeild
vs

Liverpool vs Ipswich Town

12.–15. mar 2027

Pöntun lokar 22. janúar 2027

Fararstjórn Anfield, Liverpool 3 dagar
Skráð íslensk ferðaskrifstofa Sími 680-0000

Bókun og miðapöntun — að jafnaði þarf að loka bókunum eigi síðar en 22. janúar 2027 (nákvæmur frestur kemur í tilboði og tölvupósti).

Viltu aðeins miða án flugs og gistings? Skoða staka miða →

Brottför / flug 12. mar easyJet · Keflavík → Manchester
Heimför / flug 15. mar Manchester → Keflavík
Leikvöllur Anfield Liverpool
Lengd 3 dagar 12. mars 2027 — 15. mars 2027
Gisting 3 nætur Novotel Liverpool Centre

Hvað er innifalið

Helstu atriði í pakkanum — nákvæm lýsing kemur í tilboði.

✈️ Flug

skattar og gjöld innifalin

🧳 Handfarangur + Bakpoki (undir sætið)

🚐 Akstur til og frá flugvelli í þægilegum 8 manna lúxusbílum

🏨 Gisting í 3 nætur með morgunverði og spa á Novotel city center 4 stjörnu hótel í miðbæ Liverpool

🎟️ Aðgöngumiði á leikinn Liverpool

Aston Villa (VIP Brodies lounge Anfield)

🎁 Glaðningur frá Premiertrips

við kunnum að meta okkar viðskiptavini!

👥 Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum

sér um skipulag, aðstoð og að gera ferðina sem þægilegasta

🤝 Premiertrips er í samstarfi við AutoPark

veglegur afsláttur af bílastæðum við Leifsstöð, frábær leið til að byrja ferðina stresslaust

Fararstjóri

Egill Ploder

Við erum virkilega ánægð að fá Egil Ploder, útvarps og tónlistarmann, í hóp fararstjóra hjá PremierTrips. Egill er einn af þekktustu stuðningsmönnum Liverpool á Íslandi og hefur fylgt félaginu af mikilli ástríðu í gegnum árin. Fyrir honum snýst Liverpool ekki bara um fótbolta heldur einnig söguna, menninguna og einstöku stemninguna sem fylgir borginni og Anfield. Sem fararstjóri leggur Egill áherslu á að allir njóti ferðarinnar, hvort sem um er að ræða fyrstu heimsókn á Anfield eða þá tíundu. Með góðu skapi, húmor og mikilli þekkingu á Liverpool skapar hann frábæra stemningu og gerir upplifunina enn eftirminnilegri. Með Agli sem fararstjóra færðu ekki aðeins ferð á leik heldur ferð með manni sem lifir og hrærist í Liverpool og hefur einstaka ánægju af því að deila þeirri upplifun með öðrum stuðningsmönnum.

Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum — aðstoð við leikinn, flug og gistingu, og er í boði þegar eitthvað kemur upp.

Dagskrá

Yfirlit yfir dagana.

Dagur 1 fös 12. mar

Flogið er með Easy Jet að morgni föstudags til Manchester. Við lendingu tekur fararstjóri PremierTrips á móti hópnum og tryggir að allt gangi smurt fyrir sig. Hópurinn fer svo beint með þægilegum akstri til Liverpool þar sem komið er á glæsilega Novotel hótelið. Farið er yfir innritun á hótelið og eftir það gefst þeim sem vilja tækifæri á að ganga með fararstjóra PremierTrips um Liverpool. Þar verður miðbærinn skoðaður og farið yfir hvar helstu verslanir og veitingastaðir eru og skoðaðir áhugaverða staðir og fólk fær betri tilfinningu fyrir þessari einstöku fótbolta borg.

Dagur 2 lau 13. mar

Dagurinn sem allir bíða eftir er kominn! Við förum á Anfield þar sem Liverpool tekur á móti Ipswich Town . Upplifðu einstaka stemningu, stuðningsmennina, söngvana og allt það sem gerir leikdag á Anfield að einni mögnuðustu upplifun í fótboltaheiminum (Uber tekur ca 25 mín á Anfield). Um kvöldið býður PremierTrips þeim sem vilja að koma saman út að borða á magnaða Bem Brasil sem er frábær all you can eat steikhús þar sem góður matur og góður félagsskapur fara saman. 🥩

Dagur 3 sun 14. mar

Fararstjóri með þá sem bókað hafa skoðunarferðina á Anfield. Við skoðum völlinn, göngum um svæðið í kringum Anfield, sjáum sögulegar myndir á veggjunum, heimsækjum Jota vegginn og upplifum andrúmsloftið í kringum heimavöll Liverpool.

Dagur 4 mán 15. mar

Eftir frábæra helgi er komið að heimferð. Við sækjum hópinn við Novotel hótelið og skutlum beint upp á Manchester Airport þar sem allir halda heim með fullt af minningum.

Leikvöllur, hótel og ferðaupplýsingar

Skýr yfirsýn yfir staðsetningu, gistingu og hagnýt atriði fyrir ferðina þína.

Leikdagur

Leikvöllur

Anfield

„You'll Never Walk Alone" er sungið af stuðningsmönnum fyrir hvern einasta heimaleik – eitt áhrifamesta augnablik ensks fótbolta, með um 61.000 sæti.

Meira sem gott er að vita

Brottför Keflavík → Manchester
Heimför Manchester → Keflavík
Lengd ferðar 3 dagar / 3 nætur
Leikvöllur Anfield, Liverpool
Hótel United Kingdom, Liverpool, Hanover St, Merseyside
Flugvöllur → hótel 59 mins (55.7 km)
Hótel → leikvöllur 31 mins (6.1 km)
Fararstjórn Innifalin

Praktísk atriði fyrir ferðina

ETA fyrir Bretland

Íslenskir ferðamenn þurfa almennt ETA til að ferðast til Bretlands. Sæktu um tímanlega áður en þú ferð.

Sækja um ETA hjá GOV.UK →

Afpöntunarskilmálar

Afpöntunarskilmálar geta verið mismunandi eftir flugi, hóteli og miðum. Við sendum skilmála skýrt áður en pöntun er staðfest.

Skoða skilmála →

Vantar sérsniðna ferð?

Viltu lengja ferð, velja sérstök sæti eða bæta við aukanóttum? Við sníðum pakkann fyrir þig.

Senda fyrirspurn →

Kort af svæðinu

Hótel, leikvöllur og samgöngur á einu svæði. Göngutími og leiðir sjást í korti.

Algengar spurningar um ferðina

Get ég valið sæti?

Í hópaferðum erum við með fyrirfram bókuð sæti fyrir hópinn á mjög góðum stöðum á vellinum. Að sjálfsögðu er hægt að uppfæra sætin ef óskað er eftir betri sætum en þeim sem eru innifalin í pakkanum, allt eftir framboði frá vellinum. Ferðafélaga saman í herbergi setja alltaf hlið við hlið á vellinum. Í flestum tilfellum náum við að koma vinahópum og stórfjölskyldum saman.

Hvað ef leik er frestað?

Ef dagsetning breytist höfum við samband og förum yfir valkosti með þér. Við aðstoðum með breytingar eftir reglum flugfélaga og birgja.

Þarf ég ETA fyrir Bretland?

Já, flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Við mælum með að sækja um með góðum fyrirvara.

Get ég framlengt ferðina?

Já, í mörgum tilvikum er hægt að bæta við aukanóttum. Sendu okkur fyrirspurn og við stillum ferðina eftir þínum óskum.

Hver telst barn við verðlagningu?

Börn teljast 15 ára og yngri; fullorðnir teljast 16 ára og eldri. Barngjald gildir aðeins þegar slík verðflokkun er í boði hjá birgja.

Borgar barngjald líka fyrir miða?

Barngjald gildir fyrir börn 15 ára og yngri, aðeins þegar slík verðflokkun er í boði hjá birgja. Nákvæm sundurliðun kemur fram í bókunarferli eða tilboði.