‹ Allar hópaferðir
HÓPAFERÐ · FARARSTJÓRN ENSKI BOLTINN

Liverpool –
Brentford

📍 Anfield, Liverpool · 📅 14.–17. maí 2027 · 3 nætur
Flug frá Keflavík · hótel · miði · íslensk fararstjórn

BROTTFÖR
14. maí · Keflavík
Icelandair
LEIKUR
15. maí
kl. 12:00
HEIMFERÐ
17. maí · Manchester
Icelandair
LENGD
3 nætur, 4 dagar
Brottför til heimkomu

Nákvæmir flugtímar eru staðfestir síðar og sendast með bókunarstaðfestingu.

Lýsing

Næstsíðasti heimaleikur Liverpool. Anfield. Og mögulega allt undir.

Þegar líður að lokum tímabilsins verður hver leikur stærri. Liverpool tekur á móti Brentford í næstsíðasta heimaleik sínum og ef titilbaráttan verður enn opin gæti þetta verið einn af leikjunum sem ræða því hverjir lyfta þeim stóra.

Brentford kemur ekki á Anfield til að gefa neitt eftir. Liverpool þarf að berjast fyrir hverjum metra, hverju færi og hverju marki. Fyrir stuðningsmenn er erfitt að hugsa sér betri stund til að vera á staðnum, þegar stúkan tekur undir, spennan magnast og allt Anfield ýtir liðinu áfram.

Upplifunin byrjar löngu fyrir leik. Göturnar í kringum völlinn fyllast af rauðum treyjum, söngurinn heyrist úr öllum áttum og eftirvæntingin eykst með hverju skrefi að Anfield. Fyrir þá sem vilja sjá meira er einnig hægt að fara í skoðunarferð um völlinn.

PremierTrips sér um ferðina frá upphafi til enda. Innifalið er flug með sköttum og gjöldum, þrjár nætur með morgunverði á Novotel City Centre í miðbæ Liverpool og akstur til og frá flugvelli í þægilegum lúxusbílum. Íslenskur fararstjóri er með hópnum alla ferðina og á leiknum bíður þín VIP upplifun í Brodies Sports Bar á Anfield.

Vertu þar þegar Liverpool spilar einn af síðustu heimaleikjum tímabilsins. Þetta gæti orðið leikur sem enginn stuðningsmaður vill hafa misst af.

Innifalið í ferðinni

  • Flug með Icelandair - skattar og gjöld innifalin 20 kg innrituð taska 10kg handfarangur og bakpoki
  • Akstur til og frá flugvelli
  • 4 stjörnu hótel Novotel city centre Með morgunmat og spa aðgang
  • Aðgöngumiði á leikinn Liverpool á móti Brentford
  • Glaðningur frá Premiertrips
  • Fararstjóri á vegum PremierTrips Egill Plodder
  • Facebook-hópur fyrir ferðina
  • Borgarrölt með leiðsögn
  • Skoðunarferð á Anfiled Fyrir þá sem skráðu sig

Dagskrá

14 maí
Ferðin hefst í Liverpool Brottför

Flogið er frá Keflavík til Manchester. Þar tekur fararstjóri PremierTrips á móti hópnum og ekið er til Liverpool, þar sem við komum okkur fyrir á Novotel Liverpool Centre. Eftir innritun býðst þeim sem vilja að fara með fararstjóra í gönguferð um miðbæinn, kynnast borginni og finna réttu staðina til að hita upp fyrir leikinn. Kvöldið er síðan frjálst.

15 maí
Liverpool gegn Brentford á Anfield Leikdagur

Leikdagurinn er runninn upp. Við höldum að Anfield með góðum fyrirvara svo tími gefist til að njóta stemningarinnar í kringum völlinn. Rauðar treyjur fylla göturnar, stuðningsmennirnir safnast saman og eftirvæntingin vex fram að upphafsflauti. Á vellinum tekur Liverpool á móti Brentford í næstsíðasta heimaleik sínum á tímabilinu. VIP miðarnir í Brodies Sports Bar gera daginn enn eftirminnilegri. Ef titilbaráttan verður enn opin gætu stigin úr þessum leik skipt sköpum.

16 maí
Kynnumst Anfield og njótum Liverpool Frjáls dagur

Þeir sem hafa bókað skoðunarferð um Anfield fara með fararstjóra á völlinn og fá tækifæri til að kynnast heimavelli Liverpool frá allt annarri hlið. Síðan er dagurinn frjáls og um að gera að skoða borgina, versla eða setjast niður á kaffihúsi og njóta

17 maí
Heimferð eftir eftirminnilega helgi Heimferð

Hópurinn er sóttur við Novotel hótelið og ekið til Manchester fyrir heimflugið. Að baki er helgi í Liverpool með góðum félagsskap, stemningunni á Anfield og minningum sem fylgja okkur heim.

Fararstjóri

Egill Ploder

Við erum virkilega ánægð að fá Egil Ploder, útvarps og tónlistarmann, í hóp fararstjóra hjá PremierTrips. Egill er einn af þekktustu stuðningsmönnum Liverpool á Íslandi og hefur fylgt félaginu af mikilli ástríðu í gegnum árin. Fyrir honum snýst Liverpool ekki bara um fótbolta heldur einnig söguna, menninguna og einstöku stemninguna sem fylgir borginni og Anfield. Sem fararstjóri leggur Egill áherslu á að allir njóti ferðarinnar, hvort sem um er að ræða fyrstu heimsókn á Anfield eða þá tíundu. Með góðu skapi, húmor og mikilli þekkingu á Liverpool skapar hann frábæra stemningu og gerir upplifunina enn eftirminnilegri. Með Agli sem fararstjóra færðu ekki aðeins ferð á leik heldur ferð með manni sem lifir og hrærist í Liverpool og hefur einstaka ánægju af því að deila þeirri upplifun með öðrum stuðningsmönnum.

Miðar og aðstaða

Brodies Sports Bar – VIP á Anfield Upplifðu leikdaginn í nýju Anfield Road-stúkunni með VIP-aðgangi að Brodies Sports Bar. Innifalið: Sæti saman í Anfield Road-stúkunni Beint aðgengi frá Brodies að sætunum Þægileg, bólstruð VIP-leðursæti Street food fyrir leik Drykkur í hálfleik Leikskrá Liverpool-goðsögn mætir fyrir leik Lifandi skemmtun og mögnuð stemning Bar og veðmálasvæði Brodies opnar 2,5 klukkustundum fyrir leik og er opinn í eina klukkustund eftir leik. Ekkert dresscode og ekkert rugl nema litir og treyjur gestaliðsins eru ekki leyfð.

Miðar og aðstaða, mynd 1
Miðar og aðstaða, mynd 2
Miðar og aðstaða, mynd 3

Algengar spurningar

ETA til Bretlands

Flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Það er á ábyrgð farþega að sækja um. Leiðbeiningar berast í staðfestingarpósti.

Ferðatrygging

Við mælum með ferðatryggingu sem nær yfir afbókun, sjúkrakostnað og farangur. Trygging er ekki innifalin í ferðinni.

Sérþarfir

Láttu okkur vita við bókun ef einhver í hópnum þarf aðstoð, sérfæði eða aðgengi. Við reynum að koma til móts við það eftir framboði.

Staðfestingargjald
Frestun leiks

Gisting og staðsetning

Novotel Liverpool Centre · 4★

Google-einkunn 4.3 (2789 umsagnir). 4 stjörnu hótel Novotel city centre

Novotel Liverpool Centre, mynd 1
Novotel Liverpool Centre, mynd 2
Novotel Liverpool Centre, mynd 3

Umsagnir frá ferðafélögum

Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips

“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”

Steinar Haralds
Klikkaðir miðar

“Klikkaðir miðar á flottu verði”

anton örn

Sjá allar umsagnir

Bara miðinn á leikinn?

Stakir miðar ef þú skipuleggur flug og hótel á eigin vegum.

Skoða staka miða

Umsagnir frá ferðafélögum

Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips

“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”

Steinar Haralds
Klikkaðir miðar

“Klikkaðir miðar á flottu verði”

anton örn

Sjá allar umsagnir

239.900 kr. á mann Bókun lokar 26. mars 2027
Bóka ferð