‹ Allar hópaferðir
HÓPAFERÐ · FARARSTJÓRN ENSKI BOLTINN

Liverpool –
Hull City

📍 Anfield, Liverpool · 📅 19.–22. febrúar 2027 · 3 nætur
Flug frá Keflavík · hótel · miði · íslensk fararstjórn

BROTTFÖR
19. feb · Keflavík
Icelandair
LEIKUR
20. feb
kl. 12:00
HEIMFERÐ
22. feb · Manchester
Icelandair
LENGD
3 nætur, 4 dagar
Brottför til heimkomu

Nákvæmir flugtímar eru staðfestir síðar og sendast með bókunarstaðfestingu.

Lýsing

Flogið er með Icelandair að morgni föstudags til Manchester. Við lendingu tekur fararstjóri PremierTrips á móti hópnum og tryggir að allt gangi smurt fyrir sig. Hópurinn fer svo beint með þægilegum akstri til Liverpool þar sem komið er á glæsilega Novotel hótelið. Farið er yfir innritun á hótelið og eftir það gefst þeim sem vilja tækifæri á að ganga með fararstjóra PremierTrips um Liverpool. Þar verður miðbærinn skoðaður og farið yfir hvar helstu verslanir og veitingastaðir eru og skoðaðir áhugaverða staðir og fólk fær betri tilfinningu fyrir þessari einstöku fótbolta borg.

Dagurinn sem allir bíða eftir er kominn! Við förum á Anfield þar sem Liverpool tekur á móti Hull. Upplifðu einstaka stemningu, stuðningsmennina, söngvana og allt það sem gerir leikdag á Anfield að einni mögnuðustu upplifun í fótboltaheiminum (Uber tekur ca 25 mín á Anfield). Um kvöldið býður PremierTrips þeim sem vilja að koma saman út að borða á magnaða Bem Brasil sem er frábær all you can eat steikhús þar sem góður matur og góður félagsskapur fara saman. 🥩

Fararstjóri með þá sem bókað hafa skoðunarferðina á Anfield. Við skoðum völlinn, göngum um svæðið í kringum Anfield, sjáum sögulegar myndir á veggjunum, heimsækjum Jota vegginn og upplifum andrúmsloftið í kringum heimavöll Liverpool.

Eftir frábæra helgi er komið að heimferð. Við sækjum hópinn við Novotel hótelið og skutlum beint upp á Manchester Airport þar sem allir halda heim með fullt af minningum.

Innifalið í ferðinni

  • ✈️ Flug skattar og gjöld innifalin
  • 🧳 20 kg innritaður farangur + 10 kg Handfarangur og Bakpoki
  • Akstur til og frá flugvelli
  • 🏨 Gisting í 3 nætur með morgunverði á Novotel city center 4 stjörnu hótel í miðbæ Liverpool
  • 🎟️ Aðgöngumiði á leikinn Liverpool – Hull (VIP Brodies lounge Anfield)
  • 👥 Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum – sér um skipulag, aðstoð og að gera ferðina sem þægilegasta
  • 🥩 Glæsilegur kvöldverður í boði PremierTrips á flottu steikhúsi í Liverpool
  • 🎁 Glaðningur frá Premiertrips – við kunnum að meta okkar viðskiptavini!
  • 🚶‍♂️ Gönguferð með fararstjóra um helstu staði í Liverpool City (ca 2,5 tímar) alls ekki skylda

Dagskrá

19 feb
Flogið er með Icelandair að morgni föstudags til Manchester Brottför

Við lendingu tekur fararstjóri PremierTrips á móti hópnum og tryggir að allt gangi smurt fyrir sig. Hópurinn fer svo beint með þægilegum akstri til Liverpool þar sem komið er á glæsilega Novotel hótelið. Farið er yfir innritun á hótelið og eftir það gefst þeim sem vilja tækifæri á að ganga með fararstjóra PremierTrips um Liverpool. Þar verður miðbærinn skoðaður og farið yfir hvar helstu verslanir og veitingastaðir eru og skoðaðir áhugaverða staðir og fólk fær betri tilfinningu fyrir þessari einstöku fótbolta borg.

20 feb
Dagurinn sem allir bíða eftir er kominn Leikdagur

Við förum á Anfield þar sem Liverpool tekur á móti Hull. Upplifðu einstaka stemningu, stuðningsmennina, söngvana og allt það sem gerir leikdag á Anfield að einni mögnuðustu upplifun í fótboltaheiminum (Uber tekur ca 25 mín á Anfield). Um kvöldið býður PremierTrips þeim sem vilja að koma saman út að borða á magnaða Bem Brasil sem er frábær all you can eat steikhús þar sem góður matur og góður félagsskapur fara saman. 🥩

21 feb
Fararstjóri með þá sem bókað hafa skoðunarferðina á Anfield Leikdagur

Við skoðum völlinn, göngum um svæðið í kringum Anfield, sjáum sögulegar myndir á veggjunum, heimsækjum Jota vegginn og upplifum andrúmsloftið í kringum heimavöll Liverpool.

22 feb
Eftir frábæra helgi er komið að heimferð Heimferð

Við sækjum hópinn við Novotel hótelið og skutlum beint upp á Manchester Airport þar sem allir halda heim með fullt af minningum.

Fararstjóri

Birkir Vagn Ómarsson

Það er óhætt að segja að Liverpool eigi stóran stað í hjarta Birkis Vagns Ómarssonar. Hann hefur fylgt liðinu í gegnum súrt og sætt, farið ótal sinnum á Anfield og þekkir borgina og stemninguna sem fylgir leikdegi eins og lófann á sér. Birkir hefur gaman af því að deila reynslu sinni og uppáhaldsstöðunum sínum með ferðafélögum. Hvort sem það er að finna rétta pöbbinn fyrir leik, skoða borgina eða njóta stemningarinnar í kringum Anfield, þá veit hann nákvæmlega hvað gerir Liverpool-ferð eftirminnilega. Með Birki sem fararstjóra færðu ekki bara leiðsögn – heldur ferð með manni sem hefur einlæga ástríðu fyrir Liverpool, borginni og öllu sem henni fylgir.

Miðar og aðstaða

Miðar og aðstaða, mynd 1
Miðar og aðstaða, mynd 2
Miðar og aðstaða, mynd 3

Algengar spurningar

ETA til Bretlands

Flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Það er á ábyrgð farþega að sækja um. Leiðbeiningar berast í staðfestingarpósti.

Ferðatrygging

Við mælum með ferðatryggingu sem nær yfir afbókun, sjúkrakostnað og farangur. Trygging er ekki innifalin í ferðinni.

Sérþarfir

Láttu okkur vita við bókun ef einhver í hópnum þarf aðstoð, sérfæði eða aðgengi. Við reynum að koma til móts við það eftir framboði.

Staðfestingargjald
Frestun leiks

Gisting og staðsetning

Novotel Liverpool Centre · 4★

Google-einkunn 4.3 (2782 umsagnir). Gisting í 3 nætur með morgunverði á Novotel city center 4 stjörnu hótel í miðbæ Liverpool

Novotel Liverpool Centre, mynd 1
Novotel Liverpool Centre, mynd 2
Novotel Liverpool Centre, mynd 3

Bara miðinn á leikinn?

Stakir miðar ef þú skipuleggur flug og hótel á eigin vegum.

Skoða staka miða

Umsagnir frá ferðafélögum

Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips

“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”

Steinar Haralds
Klikkaðir miðar

“Klikkaðir miðar á flottu verði”

anton örn

Sjá allar umsagnir

199.900 kr. á mann Bókun lokar 1. janúar 2027
Bóka ferð