‹ Allar hópaferðir
HÓPAFERÐ · FARARSTJÓRN ENSKI BOLTINN

Man United –
Liverpool

📍 Old Trafford, Manchester · 📅 22.–25. janúar 2027 · 3 nætur
Flug frá Keflavík · hótel · miði · íslensk fararstjórn

BROTTFÖR
22. jan · Keflavík
easyJet
LEIKUR
23. jan
kl. 12:00
HEIMFERÐ
25. jan · Manchester
easyJet
LENGD
3 nætur, 4 dagar
Brottför til heimkomu

Nákvæmir flugtímar eru staðfestir síðar og sendast með bókunarstaðfestingu.

Lýsing

Flogið er með Easy Jet að morgni föstudags til Manchester. Við lendingu tekur fararstjóri PremierTrips á móti hópnum og tryggir að allt gangi vel og skipulega fyrir sig. Að því loknu heldur hópurinn með þægilegum akstri inn í miðbæ Manchester þar sem gist verður á hinu glæsilega Radisson Hotel. Þegar hópurinn hefur komið sér fyrir á hótelinu tekur fararstjóri á móti þeim sem vilja í anddyri hótelsins og býður upp á göngutúr um miðbæ Manchester þar sem farið verður yfir helstu svæði borgarinnar, vinsælar verslanir, veitingastaði og áhugaverða staði. Einnig býðst fararstjóri til að fara með hópnum á Old Trafford Megastore þar sem hægt verður að versla treyjur, minjagripi og annað tengt Manchester United – fullkomin upphitun fyrir leikinn daginn eftir.

Leikdagur! Fararstjóri tekur á móti hópnum í anddyri hótelsins og verður farið yfir skipulag ferðarinnar að Old Trafford. (akstur ekki innifalinn) Fyrir þá sem vilja verður einnig boðið upp á að heimsækja hinn sögufræga Bishop Blaize – vinsælan stað meðal stuðningsmanna Manchester United þar sem stemningin fyrir leik er mikil, söngvar óma og stuðningsmenn hita upp fyrir stórleikinn. Þetta er að sjálfsögðu valfrjálst og fyrir þá sem vilja upplifa ekta enska fótboltastemningu. Að lokinni upphitun er gengið saman að Old Trafford þar sem Manchester United tekur á móti erkifjendunum í Liverpool í sannkölluðum stórleik. Um kvöldið býður PremierTrips þeim sem vilja að koma saman út að borða á magnaða Bem Brasil sem er frábær all you can eat steikhús þar sem góður matur og góður félagsskapur fara saman. 🥩

Í boði verður skoðunarferð um Old Trafford, sem er einstök upplifun fyrir alla fótboltaunnendur. Farið verður yfir sögu félagsins, leikmannaklefar skoðaðir og einnig heimsótt svæði sem almenningur fær sjaldan að sjá, þar á meðal VIP svæðið þar sem stórmenni á borð við Sir Alex Ferguson hafa notið leikdagsins. Eftir skoðunarferðina verður stefnan sett á Trafford Centre verslunarmiðstöðina fyrir þá sem vilja nýta tækifærið til verslunar eða skoðunar. Að sjálfsögðu er þetta valfrjálst og fararstjóri fer með þeim sem vilja. Um kvöldið verður farastjórinn með skemmtilegt pubquiz á hótelinu þar sem hægt verður að vinna flottan vinning frá PremierTrips.

Eftir frábæra helgi í Manchester er komið að heimför. Hópurinn verður sóttur á hótelið og ekið út á Manchester Airport þar sem flogið verður heim með fullt af frábærum minningum úr ógleymanlegri fótboltaferð.

Innifalið í ferðinni

  • Flug — easyJet Handfarangur + Bakpoki undir sætið
  • Akstur til og frá flugvelli
  • Aðgöngumiði á leikinn A+ sæti meðfram miðjum vellinum neðsta stúka
  • Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum Sér um skipulag, aðstoð og að gera ferðina sem þægilegasta
  • Glaðningur frá Premiertrips Við kunnum að meta okkar viðskiptavini!
  • Borgarrölt með leiðsögn
  • Kvöldverður í boði PremierTrips Á hinum magnaða Bem Brazil

Dagskrá

22 jan
Flogið er með Easy Jet að morgni föstudags til Manchester Brottför

Við lendingu tekur fararstjóri PremierTrips á móti hópnum og tryggir að allt gangi vel og skipulega fyrir sig. Að því loknu heldur hópurinn með þægilegum akstri inn í miðbæ Manchester þar sem gist verður á hinu glæsilega Radisson Hotel. Þegar hópurinn hefur komið sér fyrir á hótelinu tekur fararstjóri á móti þeim sem vilja í anddyri hótelsins og býður upp á göngutúr um miðbæ Manchester þar sem farið verður yfir helstu svæði borgarinnar, vinsælar verslanir, veitingastaði og áhugaverða staði. Einnig býðst fararstjóri til að fara með hópnum á Old Trafford Megastore þar sem hægt verður að versla treyjur, minjagripi og annað tengt Manchester United – fullkomin upphitun fyrir leikinn daginn eftir.

23 jan
Leikdagur Leikdagur

Fararstjórinn hittir hópinn í anddyri hótelsins og fer yfir ferðina á Old Trafford. Akstur á völlinn er ekki innifalinn. Þeir sem vilja geta farið með fararstjóranum á Bishop Blaize fyrir leik. Kráin er vinsæll samkomustaður stuðningsmanna United og þar vantar hvorki sönginn né stemninguna þegar Liverpool kemur í heimsókn. Þaðan göngum við saman að Old Trafford, þar sem erkifjendurnir mætast í stórleik. Um kvöldið býður PremierTrips þeim sem vilja út að borða á steikhúsið Bem Brasil. Þar er hægt að borða að vild og við tökum okkur góðan tíma í matinn, ræðum leikinn og njótum kvöldsins saman.

24 jan
Í boði verður skoðunarferð um Old Trafford, sem er einstök… Skoðunarferð

Þeir sem vilja geta farið með fararstjóra í spennandi skoðunarferð um Old Trafford og upplifað heimavöll Manchester United frá nýrri hlið. Við kynnumst sögu félagsins, skoðum búningsklefa leikmannanna og skyggnumst á bak við tjöldin, meðal annars á VIP-svæðið þar sem Sir Alex Ferguson hefur notið leikdagsins. Frábært tækifæri til að komast enn nær félaginu og sögunni sem gerir völlinn svo sérstakan. Að skoðunarferðinni lokinni heldur fararstjóri með áhugasömum í Trafford Centre. Þar gefst tími til að kíkja í verslanir, fá sér eitthvað gott og njóta dagsins. Báðar ferðirnar eru valfrjálsar og öllum frjálst að verja deginum að eigin óskum. Um kvöldið hittumst við á hótelinu þar sem fararstjórinn stýrir skemmtilegri spurningakeppni. Þá reynir á þekkinguna, keppnisskapið fær að njóta sín og flottur vinningur frá PremierTrips er í húfi!

25 jan
Eftir frábæra helgi í Manchester er komið að heimför Heimferð

Hópurinn verður sóttur á hótelið og ekið út á Manchester Airport þar sem flogið verður heim með fullt af frábærum minningum úr ógleymanlegri fótboltaferð.

Fararstjóri

Ási Guðna

Ási Guðni er útvarpsmaður og skemmtikraftur sem flestir kannast við. Hann er þekktur fyrir létta lund, skemmtilegan húmor og hefur á undanförnum árum skapað sér sterkan sess sem einn vinsælasti skemmtikraftur landsins. Með Ása Guðna sem fararstjóra má búast við frábærri stemningu frá upphafi til enda. Hann hefur einstakt lag á að ná fólki saman og gera góða ferð enn betri með húmor, góðum sögum og skemmtilegum félagsskap.

Miðar og aðstaða

Þetta er leikur sem menn vilja sjá almennilega og miðarnir í þessum pakka setja hópinn á frábæran stað. Aðgöngumiði á leikinn er innifalinn og hópurinn fær A+ sæti meðfram miðjum vellinum í neðstu stúku, þar sem útsýnið yfir leikinn er sérstaklega gott. Hópurinn situr saman eins og kostur er. Aðgangur að almennri aðstöðu á Old Trafford fylgir, þar á meðal veitingasölu og salernum. PremierTrips sér um afhendingu miðanna og fararstjóri aðstoðar hópinn á staðnum, svo leikdagurinn verður einfaldur og þægilegur.

Miðar og aðstaða, mynd 1
Miðar og aðstaða, mynd 2
Miðar og aðstaða, mynd 3

Algengar spurningar

ETA til Bretlands

Flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Það er á ábyrgð farþega að sækja um. Leiðbeiningar berast í staðfestingarpósti.

Ferðatrygging

Við mælum með ferðatryggingu sem nær yfir afbókun, sjúkrakostnað og farangur. Trygging er ekki innifalin í ferðinni.

Sérþarfir

Láttu okkur vita við bókun ef einhver í hópnum þarf aðstoð, sérfæði eða aðgengi. Við reynum að koma til móts við það eftir framboði.

Staðfestingargjald
Frestun leiks

Gisting og staðsetning

Radisson Hotel Manchester City Centre

Google-einkunn 4,1 (2.636 umsagnir). Gönguleið í verslanir, veitingastaði og lestarstöð. Morgunmatur innifalinn alla morgna. Tveggja manna herbergi í grunnverði; einstaklingsherbergi gegn aukagjaldi.

Radisson Hotel Manchester City Centre, mynd 1
Radisson Hotel Manchester City Centre, mynd 2
Radisson Hotel Manchester City Centre, mynd 3

Umsagnir frá ferðafélögum

Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips

“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”

Steinar Haralds
Klikkaðir miðar

“Klikkaðir miðar á flottu verði”

anton örn

Sjá allar umsagnir

Bara miðinn á leikinn?

Stakir miðar ef þú skipuleggur flug og hótel á eigin vegum.

Skoða staka miða

Umsagnir frá ferðafélögum

Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips

“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”

Steinar Haralds
Klikkaðir miðar

“Klikkaðir miðar á flottu verði”

anton örn

Sjá allar umsagnir

254.900 kr. á mann Bókun lokar 4. desember 2026
Bóka ferð