
Nákvæmir flugtímar eru staðfestir síðar og sendast með bókunarstaðfestingu.
Lýsing
Flogið er með Easy Jet að morgni föstudags til Manchester. Við lendingu tekur fararstjóri PremierTrips á móti hópnum og tryggir að allt gangi vel og skipulega fyrir sig. Að því loknu heldur hópurinn með þægilegum akstri inn í miðbæ Manchester þar sem gist verður á hinu glæsilega Radisson Hotel. Þegar hópurinn hefur komið sér fyrir á hótelinu tekur fararstjóri á móti þeim sem vilja í anddyri hótelsins og býður upp á göngutúr um miðbæ Manchester þar sem farið verður yfir helstu svæði borgarinnar, vinsælar verslanir, veitingastaði og áhugaverða staði. Einnig býðst fararstjóri til að fara með hópnum á Old Trafford Megastore þar sem hægt verður að versla treyjur, minjagripi og annað tengt Manchester United – fullkomin upphitun fyrir leikinn daginn eftir.
Leikdagur! Fararstjóri tekur á móti hópnum í anddyri hótelsins og verður farið yfir skipulag ferðarinnar að Old Trafford. (akstur ekki innifalinn) Fyrir þá sem vilja verður einnig boðið upp á að heimsækja hinn sögufræga Bishop Blaize – vinsælan stað meðal stuðningsmanna Manchester United þar sem stemningin fyrir leik er mikil, söngvar óma og stuðningsmenn hita upp fyrir stórleikinn. Þetta er að sjálfsögðu valfrjálst og fyrir þá sem vilja upplifa ekta enska fótboltastemningu. Að lokinni upphitun er gengið saman að Old Trafford þar sem Manchester United tekur á móti erkifjendunum í Liverpool í sannkölluðum stórleik. Um kvöldið býður PremierTrips þeim sem vilja að koma saman út að borða á magnaða Bem Brasil sem er frábær all you can eat steikhús þar sem góður matur og góður félagsskapur fara saman. 🥩
Í boði verður skoðunarferð um Old Trafford, sem er einstök upplifun fyrir alla fótboltaunnendur. Farið verður yfir sögu félagsins, leikmannaklefar skoðaðir og einnig heimsótt svæði sem almenningur fær sjaldan að sjá, þar á meðal VIP svæðið þar sem stórmenni á borð við Sir Alex Ferguson hafa notið leikdagsins. Eftir skoðunarferðina verður stefnan sett á Trafford Centre verslunarmiðstöðina fyrir þá sem vilja nýta tækifærið til verslunar eða skoðunar. Að sjálfsögðu er þetta valfrjálst og fararstjóri fer með þeim sem vilja. Um kvöldið verður farastjórinn með skemmtilegt pubquiz á hótelinu þar sem hægt verður að vinna flottan vinning frá PremierTrips.
Eftir frábæra helgi í Manchester er komið að heimför. Hópurinn verður sóttur á hótelið og ekið út á Manchester Airport þar sem flogið verður heim með fullt af frábærum minningum úr ógleymanlegri fótboltaferð.
Innifalið í ferðinni
- Flug — skattar og gjöld innifalin
- 🧳 Handfarangur + Bakpoki undir sætið
- Akstur til og frá flugvelli
- 🏨 Gisting í 3 nætur með morgunverði á Novotel city center 4 stjörnu hótel í miðbæ Manchester
- 🎟️ Aðgöngumiði á leik Manchester United vs Liverpool (A+ sæti meðfram miðjum vellinum neðsta stúka)
- 👥 Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum – sér um skipulag, aðstoð og að gera ferðina sem þægilegasta
- 🎁 Glaðningur frá Premiertrips – við kunnum að meta okkar viðskiptavini!
- 🤝 Premiertrips er í samstarfi við AutoPark – veglegur afsláttur af bílastæðum við Leifsstöð, frábær leið til að byrja ferðina stresslaust
Dagskrá
Flogið er með Easy Jet að morgni föstudags til Manchester Brottför
Við lendingu tekur fararstjóri PremierTrips á móti hópnum og tryggir að allt gangi vel og skipulega fyrir sig. Að því loknu heldur hópurinn með þægilegum akstri inn í miðbæ Manchester þar sem gist verður á hinu glæsilega Radisson Hotel. Þegar hópurinn hefur komið sér fyrir á hótelinu tekur fararstjóri á móti þeim sem vilja í anddyri hótelsins og býður upp á göngutúr um miðbæ Manchester þar sem farið verður yfir helstu svæði borgarinnar, vinsælar verslanir, veitingastaði og áhugaverða staði. Einnig býðst fararstjóri til að fara með hópnum á Old Trafford Megastore þar sem hægt verður að versla treyjur, minjagripi og annað tengt Manchester United – fullkomin upphitun fyrir leikinn daginn eftir.
Leikdagur Leikdagur
Fararstjóri tekur á móti hópnum í anddyri hótelsins og verður farið yfir skipulag ferðarinnar að Old Trafford. (akstur ekki innifalinn) Fyrir þá sem vilja verður einnig boðið upp á að heimsækja hinn sögufræga Bishop Blaize – vinsælan stað meðal stuðningsmanna Manchester United þar sem stemningin fyrir leik er mikil, söngvar óma og stuðningsmenn hita upp fyrir stórleikinn. Þetta er að sjálfsögðu valfrjálst og fyrir þá sem vilja upplifa ekta enska fótboltastemningu. Að lokinni upphitun er gengið saman að Old Trafford þar sem Manchester United tekur á móti erkifjendunum í Liverpool í sannkölluðum stórleik. Um kvöldið býður PremierTrips þeim sem vilja að koma saman út að borða á magnaða Bem Brasil sem er frábær all you can eat steikhús þar sem góður matur og góður félagsskapur fara saman. 🥩
Í boði verður skoðunarferð um Old Trafford, sem er einstö… Leikdagur
k upplifun fyrir alla fótboltaunnendur. Farið verður yfir sögu félagsins, leikmannaklefar skoðaðir og einnig heimsótt svæði sem almenningur fær sjaldan að sjá, þar á meðal VIP svæðið þar sem stórmenni á borð við Sir Alex Ferguson hafa notið leikdagsins. Eftir skoðunarferðina verður stefnan sett á Trafford Centre verslunarmiðstöðina fyrir þá sem vilja nýta tækifærið til verslunar eða skoðunar. Að sjálfsögðu er þetta valfrjálst og fararstjóri fer með þeim sem vilja. Um kvöldið verður farastjórinn með skemmtilegt pubquiz á hótelinu þar sem hægt verður að vinna flottan vinning frá PremierTrips.
Eftir frábæra helgi í Manchester er komið að heimför Heimferð
Hópurinn verður sóttur á hótelið og ekið út á Manchester Airport þar sem flogið verður heim með fullt af frábærum minningum úr ógleymanlegri fótboltaferð.
Fararstjóri
Ási Guðna
Ási Guðni er útvarpsmaður og skemmtikraftur sem flestir kannast við. Hann er þekktur fyrir létta lund, skemmtilegan húmor og hefur á undanförnum árum skapað sér sterkan sess sem einn vinsælasti skemmtikraftur landsins. Með Ása Guðna sem fararstjóra má búast við frábærri stemningu frá upphafi til enda. Hann hefur einstakt lag á að ná fólki saman og gera góða ferð enn betri með húmor, góðum sögum og skemmtilegum félagsskap.
Miðar og aðstaða
Algengar spurningar
ETA til Bretlands
Flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Það er á ábyrgð farþega að sækja um. Leiðbeiningar berast í staðfestingarpósti.
Ferðatrygging
Við mælum með ferðatryggingu sem nær yfir afbókun, sjúkrakostnað og farangur. Trygging er ekki innifalin í ferðinni.
Sérþarfir
Láttu okkur vita við bókun ef einhver í hópnum þarf aðstoð, sérfæði eða aðgengi. Við reynum að koma til móts við það eftir framboði.
Staðfestingargjald
Frestun leiks
Gisting og staðsetning
Radisson Hotel Manchester City Centre, A Verified Net Zero Hotel · 4★
Google-einkunn 4.1 (2636 umsagnir). Gisting í 3 nætur með morgunverði á Novotel city center 4 stjörnu hótel í miðbæ Manchester
Bara miðinn á leikinn?
Stakir miðar ef þú skipuleggur flug og hótel á eigin vegum.
Skoða staka miðaUmsagnir frá ferðafélögum
Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”
Klikkaðir miðar“Klikkaðir miðar á flottu verði”