‹ Allar hópaferðir
HÓPAFERÐ · FARARSTJÓRN ENSKI BOLTINN

Liverpool –
Hull City

📍 Anfield, Liverpool · 📅 19.–22. febrúar 2027 · 3 nætur
Flug frá Keflavík · hótel · miði · íslensk fararstjórn

BROTTFÖR
19. feb · Keflavík
Icelandair
LEIKUR
20. feb
kl. 12:00
HEIMFERÐ
22. feb · Manchester
Icelandair
LENGD
3 nætur, 4 dagar
Brottför til heimkomu

Nákvæmir flugtímar eru staðfestir síðar og sendast með bókunarstaðfestingu.

Lýsing

Það er alltaf eitthvað sérstakt við leikdag á Anfield og þegar Liverpool fær Hull City í heimsókn er um að ræða klassískan heimaleik þar sem allt snýst um að sjá rauðklædda liðið taka völdin frá fyrstu mínútu. Fyrir þá sem vilja upplifa Liverpool á sínum eigin heimavelli, með sönginn úr stúkunni, pressuna á vellinum og taktinn í leiknum, er þetta akkúrat rétti leikurinn til að fara á.

Anfield er einn þekktasti leikvangur enska boltans og það er mikill munur á því að horfa á Liverpool í sjónvarpi eða vera mættur á staðinn þegar liðin ganga út. „You’ll Never Walk Alone“, spennan rétt fyrir upphafsflaut og væntingarnar í kringum hvern sóknarleik gera sitt. Með VIP Brodies lounge aðgöngumiða færðu svo þægilega umgjörð í kringum leikinn án þess að fókusinn fari af því sem skiptir mestu máli, sjálfum fótboltanum.

Stemningin byrjar löngu áður en sest er í sætið. Svæðið í kringum völlinn fyllist af stuðningsmönnum, treyjum og umræðum um liðsvalið, og inni á Anfield er þessi sérstaka nálægð við leikinn sem gerir völlinn svo eftirsóttan áfangastað fyrir knattspyrnuáhugafólk. Fyrir þá sem vilja kafa dýpra í söguna er einnig skoðunarferð á vellinum í boði.

Flogið er með Icelandair frá Keflavík til Manchester og þaðan er akstur til og frá Liverpool innifalinn. Gist er á Novotel Liverpool Centre, 4 stjörnu hóteli í miðbænum, og íslenskur fararstjóri fylgir hópnum alla ferðina. Einnig er glæsilegur kvöldverður í boði PremierTrips og valfrjáls gönguferð um helstu staði borgarinnar.

Innifalið í ferðinni

  • Flug með Icelandair - skattar og gjöld innifalin 20 kg innrituð taska + 10 kg Handfarangur
  • Akstur til og frá flugvelli
  • 4 stjörnu hótel í miðbæ Liverpool Með morgunmat og Spa
  • Aðgöngumiði á leikinn VIP Brodies lounge Anfield
  • Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum Birkir Vagn
  • Borgarrölt með leiðsögn Um helstu staðina í miðbænum
  • Kvöldverður í boði PremierTrips Bem Brazil
  • Facebook-hópur fyrir ferðina
  • PremierTrips gjöf

Dagskrá

19 feb
Liverpool, hér komum við! Brottför

Flogið er með Icelandair til Manchester þar sem fararstjóri PremierTrips tekur á móti hópnum. Við ökum til Liverpool og komum okkur fyrir á Novotel hótelinu. Síðan geta þeir sem vilja farið með fararstjóra í göngu um miðbæinn, fundið spennuna fyrir leiknum og byrjað helgina í góðum félagsskap.

20 feb
Leikdagur á Anfield Leikdagur

Það er fátt sem jafnast á við leikdag á Anfield. Við upplifum söngvana, stemninguna í stúkunni og Liverpool gegn Hull á heimavelli. Um kvöldið býður PremierTrips öllum hópnum út að borða á Bem Brasil. Þar höldum við áfram að njóta dagsins yfir góðum mat og spjalli.

21 feb
Frjáls dagur í Liverpool og Anfield skoðunarferð fyrir áhugasama Frjáls dagur

Njóttu Liverpool á þínum hraða, kíktu í verslanir, sestu inn á kaffihús eða skoðaðu borgina betur. Þeir sem hafa bókað skoðunarferð fara með fararstjóra að Anfield, ganga um svæðið við völlinn, sjá Jota vegginn og heyra sögur af Liverpool og stuðningsmönnum félagsins.

22 feb
Heimferð eftir góða helgi Heimferð

Hópurinn er sóttur við Novotel hótelið og ekið á flugvöllinn í Manchester fyrir heimflugið. Við tökum með okkur góðar minningar frá Liverpool, nýjan félagsskap og stemninguna af Anfield.

Fararstjóri

Birkir Vagn Ómarsson

Það er óhætt að segja að Liverpool eigi stóran stað í hjarta Birkis Vagns Ómarssonar. Hann hefur fylgt liðinu í gegnum súrt og sætt, farið ótal sinnum á Anfield og þekkir borgina og stemninguna sem fylgir leikdegi eins og lófann á sér. Birkir hefur gaman af því að deila reynslu sinni og uppáhaldsstöðunum sínum með ferðafélögum. Hvort sem það er að finna rétta pöbbinn fyrir leik, skoða borgina eða njóta stemningarinnar í kringum Anfield, þá veit hann nákvæmlega hvað gerir Liverpool-ferð eftirminnilega. Með Birki sem fararstjóra færðu ekki bara leiðsögn – heldur ferð með manni sem hefur einlæga ástríðu fyrir Liverpool, borginni og öllu sem henni fylgir.

Miðar og aðstaða

Upplifðu leikdaginn í nýju Anfield Road-stúkunni með VIP-aðgangi að Brodies Sports Bar. Innifalið: Sæti saman í Anfield Road-stúkunni Beint aðgengi frá Brodies að sætunum Þægileg, bólstruð VIP-leðursæti Street food fyrir leik Drykkur í hálfleik Leikskrá Liverpool-goðsögn mætir fyrir leik Lifandi skemmtun og mögnuð stemning Bar og veðmálasvæði Brodies opnar 2,5 klukkustundum fyrir leik og er opinn í eina klukkustund eftir leik. Ekkert dresscode og ekkert rugl nema treyjur gestaliðsins eru ekki leyfðar.

Miðar og aðstaða, mynd 1
Miðar og aðstaða, mynd 2
Miðar og aðstaða, mynd 3

Algengar spurningar

ETA til Bretlands

Flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Það er á ábyrgð farþega að sækja um. Leiðbeiningar berast í staðfestingarpósti.

Ferðatrygging

Við mælum með ferðatryggingu sem nær yfir afbókun, sjúkrakostnað og farangur. Trygging er ekki innifalin í ferðinni.

Sérþarfir

Láttu okkur vita við bókun ef einhver í hópnum þarf aðstoð, sérfæði eða aðgengi. Við reynum að koma til móts við það eftir framboði.

Staðfestingargjald
Frestun leiks

Gisting og staðsetning

Novotel Liverpool Centre

Google-einkunn 4,3 (2.782 umsagnir). 4 stjörnu hótel í miðbæ Liverpool

Novotel Liverpool Centre, mynd 1
Novotel Liverpool Centre, mynd 2
Novotel Liverpool Centre, mynd 3

Umsagnir frá ferðafélögum

Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips

“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”

Steinar Haralds
Klikkaðir miðar

“Klikkaðir miðar á flottu verði”

anton örn

Sjá allar umsagnir

Bara miðinn á leikinn?

Stakir miðar ef þú skipuleggur flug og hótel á eigin vegum.

Skoða staka miða

Umsagnir frá ferðafélögum

Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips

“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”

Steinar Haralds
Klikkaðir miðar

“Klikkaðir miðar á flottu verði”

anton örn

Sjá allar umsagnir

199.900 kr. á mann Bókun lokar 1. janúar 2027
Bóka ferð