LeikdagurCeline Dion · — (enginn gestur)
21.–24. maí 2027
Pöntun lokar 2. apríl 2027
Bókun og miðapöntun - að jafnaði þarf að loka bókunum eigi síðar en 2. apríl 2027 (nákvæmur frestur kemur í tilboði og tölvupósti).
Hvað er innifalið
Helstu atriði í pakkanum - nákvæm lýsing kemur í tilboði.
Flug
Keflavík → París · 07:35–13:00
Gisting
Hôtel Mercure Paris La Defense
Leikur
Parc des Princes - rue de Commandant Guibaud Paris 7501
Fararstjórn
Íslenskur fararstjóri: Camilla Rut
Fararstjóri
Camilla Rut
Camilla Rut er kraftmikill og hlýlegur fararstjóri sem margir þekkja úr íslensku samfélagsmiðlalífi og úr tónlistinni. Hún hefur vakið mikla athygli fyrir persónulegan stíl, sterka nærveru og skemmtilega framkomu og er í dag einstaklega vinsæl hjá breiðum hópi fólks. Sem fararstjóri hjá PremierTrips leggur Camilla mikla áherslu á góða stemningu, persónulega þjónustu og að hver ferð verði upplifun frá upphafi til enda. Hún hefur einstakt lag á að tengja fólk saman, halda vel utan um hópinn og skapa létta og skemmtilega stemningu án þess að slaka á fagmennskunni. Með Camillu Rut sem fararstjóra má búast við mikilli orku, góðum húmor og ferð sem verður minnisstæð löngu eftir að viðburðinum lýkur.
Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum - aðstoð við leikinn, flug og gistingu, og er í boði þegar eitthvað kemur upp.
Dagskrá
Yfirlit yfir dagana.
Það er ekki á hverjum degi sem gefst tækifæri til að sjá Céline Dion stíga á svið í París. Þetta er ein af þessum ferðum þar sem eftirvæntingin byrjar löngu áður en ljósin slokkna.
Hápunkturinn er tónleikakvöldið á Paris La Défense Arena. Tugþúsundir gesta í salnum. Fyrstu tónarnir. Rödd sem heilu kynslóðirnar þekkja frá fyrstu sekúndu. Lög sem tengjast minningum, augnablikum og ákveðnum tímabilum í lífi fólks. Þegar Céline Dion stendur á sviðinu og salurinn syngur með verður þetta meira en tónleikar. Þetta verður stund sem gefur gæsahúð.
París gerir upplifunina enn stærri. Ferðin fer fram 21.–24. maí 2027 og gefur nægan tíma til að njóta borgarinnar, veitingastaðanna, verslunarinnar og mannlífsins áður en komið er að stóra kvöldinu.
Camilla Rut fer með hópnum sem fararstjóri og heldur utan um ferðina frá upphafi til enda. Margir þekkja hana af samfélagsmiðlum og úr tónlistinni og hún kemur með nákvæmlega þá orku sem svona ferð kallar á. Mikla útgeislun, húmor, léttleika og einstakt lag á að skapa stemningu og tengja fólk saman.
Þú í París. Camilla Rut með hópinn. Tugþúsundir í salnum. Céline Dion á sviðinu.
Þetta verður ekki bara tónleikaferð.
Þetta verður ein af þessum ferðum sem maður talar um árum síðar.
Leikvöllur, hótel og ferðaupplýsingar
Skýr yfirsýn yfir staðsetningu, gistingu og hagnýt atriði fyrir ferðina þína.
Leikdagur
Meira sem gott er að vita
Praktísk atriði fyrir ferðina
ETA fyrir Bretland
Íslenskir ferðamenn þurfa almennt ETA til að ferðast til Bretlands. Sæktu um tímanlega áður en þú ferð.
Sækja um ETA hjá GOV.UK →Afpöntunarskilmálar
Afpöntunarskilmálar geta verið mismunandi eftir flugi, hóteli og miðum. Við sendum skilmála skýrt áður en pöntun er staðfest.
Skoða skilmála →Vantar sérsniðna ferð?
Viltu lengja ferð, velja sérstök sæti eða bæta við aukanóttum? Við sníðum pakkann fyrir þig.
Senda fyrirspurn →Algengar spurningar um ferðina
Get ég valið sæti?
Í hópaferðum erum við með fyrirfram bókuð sæti fyrir hópinn á mjög góðum stöðum á vellinum. Að sjálfsögðu er hægt að uppfæra sætin ef óskað er eftir betri sætum en þeim sem eru innifalin í pakkanum, allt eftir framboði frá vellinum. Ferðafélaga saman í herbergi setja alltaf hlið við hlið á vellinum. Í flestum tilfellum náum við að koma vinahópum og stórfjölskyldum saman.
Hvað ef leik er frestað?
Ef dagsetning breytist höfum við samband og förum yfir valkosti með þér. Við aðstoðum með breytingar eftir reglum flugfélaga og birgja.
Þarf ég ETA fyrir Bretland?
Já, flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Við mælum með að sækja um með góðum fyrirvara.
Get ég framlengt ferðina?
Já, í mörgum tilvikum er hægt að bæta við aukanóttum. Sendu okkur fyrirspurn og við stillum ferðina eftir þínum óskum.
Hver telst barn við verðlagningu?
Börn teljast 15 ára og yngri; fullorðnir teljast 16 ára og eldri. Barngjald gildir aðeins þegar slík verðflokkun er í boði hjá birgja.
Borgar barngjald líka fyrir miða?
Barngjald gildir fyrir börn 15 ára og yngri, aðeins þegar slík verðflokkun er í boði hjá birgja. Nákvæm sundurliðun kemur fram í bókunarferli eða tilboði.
Fleiri hópaferðir
Aðrar ferðir sem gætu hentað þér.
Umsagnir frá ferðafélögum
Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”
Klikkaðir miðar“Klikkaðir miðar á flottu verði”