‹ Allar hópaferðir
HÓPAFERÐ · FARARSTJÓRN ENSKI BOLTINN

Liverpool –
Everton

📍 Anfield, Liverpool · 📅 29. janúar – 1. febrúar 2027 · 3 nætur
Flug frá Keflavík · hótel · miði · íslensk fararstjórn

BROTTFÖR
29. jan · Keflavík
easyJet
LEIKUR
30. jan
kl. 12:00
HEIMFERÐ
1. feb · Manchester
easyJet
LENGD
3 nætur, 4 dagar
Brottför til heimkomu

Nákvæmir flugtímar eru staðfestir síðar og sendast með bókunarstaðfestingu.

Lýsing

Það er erfitt að finna leik í ensku boltanum sem ber með sér jafn sterka borgarstolts- og nágrannasögu og Liverpool gegn Everton. Merseyside-slagurinn á Anfield er ekki bara stór viðureign á dagskrá heldur leikur sem lifir á hefð, tilfinningu og því að hvorugt liðið vill gefa tommu. Þegar þessi lið mætast verður leikurinn oft þéttur, hraður og ákafur frá fyrstu mínútu.

Það sérstaka við þessa viðureign er að samhengi deildarinnar skiptir oft minna máli en ella. Hér snýst margt um yfirráð í borginni, um stoltið á stúkunni og um að vera liðið sem gengur sáttara út úr helginni. Tæklingarnar eru aðeins harðari, fögnuðurinn aðeins háværari og andrúmsloftið á vellinum ber þess skýrt merki að þetta er leikur sem stuðningsmenn beggja liða taka persónulega.

Á leikdegi verður vel vart við það í kringum Anfield. Fólk safnast saman snemma, söngvarnir taka yfir göturnar og þegar komið er inn á völlinn finnur maður strax hvað þessi leikur vegur þungt. Fyrir þá sem vilja kafa enn dýpra í söguna er einnig í boði skoðunarferð á vellinum.

Ferðin stendur frá 29. janúar til 1. febrúar með flugi frá Keflavík til Manchester með easyJet. Gist er í þrjár nætur á Novotel Liverpool Centre, fjögurra stjörnu hóteli í miðbænum með spa-aðgangi og morgunverði. Fararstjóri frá PremierTrips er með hópnum, tekið er á móti gestum á flugvelli og einnig eru borgarrölt með leiðsögn og kvöldverður innifalin.

Innifalið í ferðinni

  • PremierTrips-gjöf
  • Flug báðar leiðir easyjet
  • Fararstjóri á vegum PremierTrips
  • Gisting í 3 nætur
  • Borgarrölt með leiðsögn
  • Kvöldverður í boði PremierTrips
  • Móttaka á flugvelli – Meet & greet
  • Ferðatrygging
  • 4 stjörnu hótel í miðbænum með Spa aðgangi Novotel Liverpool Centre
  • Morgunmatur
  • Reynir vekur þig á morgnanna

Dagskrá

29 jan
Flogið er með EasyJet að morgni föstudags til Manchester Brottför

Við lendingu tekur fararstjóri PremierTrips á móti hópnum og tryggir að allt gangi smurt fyrir sig. Hópurinn fer svo beint með þægilegum akstri til Liverpool þar sem komið er á glæsilega Novotel hótelið. Farið er yfir innritun á hótelið og eftir það gefst þeim sem vilja tækifæri á að ganga með fararstjóra PremierTrips um Liverpool. Þar verður miðbærinn skoðaður og farið yfir hvar helstu verslanir og veitingastaðir eru og skoðaðir áhugaverða staðir og fólk fær betri tilfinningu fyrir þessari einstöku fótbolta borg.

30 jan
Dagurinn sem allir bíða eftir er kominn Leikdagur

Við förum á Anfield þar sem Liverpool tekur á móti Everton í alvöru grannaslag þar sem hatrið er mikið og söngvarnir fljúga á milli stuðningsmanna þetta er leikur sem allt er undir um baráttuna um bítlaborgina. Upplifðu einstaka stemningu, stuðningsmennina, söngvana og allt það sem gerir leikdag á Anfield að einni mögnuðustu upplifun í fótboltaheiminum (Uber tekur ca 25 mín á Anfield). Um kvöldið býður PremierTrips þeim sem vilja að koma saman út að borða á magnaða Bem Brasil sem er frábær all you can eat steikhús þar sem góður matur og góður félagsskapur fara saman. 🥩

31 jan
Fararstjóri með þá sem bókað hafa skoðunarferðina á Anfield Frjáls dagur

Við skoðum völlinn, göngum um svæðið í kringum Anfield, sjáum sögulegar myndir á veggjunum, heimsækjum Jota vegginn og upplifum andrúmsloftið í kringum heimavöll Liverpool. Farið verður yfir skemmtilegar og sjaldheyrðar sögur af liðinu, leikmönnum og stuðningsmönnum sem gera Liverpool að einu þekktasta félagi heims.

01 feb
Eftir frábæra helgi er komið að heimferð Heimferð

Við sækjum hópinn við Novotel hótelið og skutlum beint upp á Manchester Airport þar sem allir halda heim með fullt af minningum.

Fararstjóri

Reynir B Reynisson

Reynir hefur stýrt ferðum til Englands í mörg ár og þekkir Liverpool eins og lófann á sér. Anfield upplifunin er honum í blóð borin.

Miðar og aðstaða

Brodies Sports Bar – VIP á Anfield Upplifðu leikdaginn í nýju Anfield Road-stúkunni með VIP-aðgangi að Brodies Sports Bar. Innifalið: Sæti saman í Anfield Road-stúkunni Beint aðgengi frá Brodies að sætunum Þægileg, bólstruð VIP-leðursæti Street food fyrir leik Drykkur í hálfleik Leikskrá Liverpool-goðsögn mætir fyrir leik Lifandi skemmtun og mögnuð stemning Bar og veðmálasvæði Brodies opnar 2,5 klukkustundum fyrir leik og er opinn í eina klukkustund eftir leik. Ekkert dresscode og ekkert rugl nema litir og treyjur gestaliðsins eru ekki leyfð.

Miðar og aðstaða, mynd 1
Miðar og aðstaða, mynd 2
Miðar og aðstaða, mynd 3

Algengar spurningar

ETA til Bretlands

Flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Það er á ábyrgð farþega að sækja um. Leiðbeiningar berast í staðfestingarpósti.

Ferðatrygging

Við mælum með ferðatryggingu sem nær yfir afbókun, sjúkrakostnað og farangur. Trygging er ekki innifalin í ferðinni.

Sérþarfir

Láttu okkur vita við bókun ef einhver í hópnum þarf aðstoð, sérfæði eða aðgengi. Við reynum að koma til móts við það eftir framboði.

Staðfestingargjald
Frestun leiks

Gisting og staðsetning

Novotel Liverpool Centre · 4★

Google-einkunn 4.3 (2787 umsagnir). Gisting í 3 nætur

Novotel Liverpool Centre, mynd 1
Novotel Liverpool Centre, mynd 2
Novotel Liverpool Centre, mynd 3

Bara miðinn á leikinn?

Stakir miðar ef þú skipuleggur flug og hótel á eigin vegum.

Skoða staka miða

Umsagnir frá ferðafélögum

Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips

“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”

Steinar Haralds
Klikkaðir miðar

“Klikkaðir miðar á flottu verði”

anton örn

Sjá allar umsagnir

254.900 kr. á mann Bókun lokar 11. desember 2026
Bóka ferð