‹ Allar hópaferðir
HÓPAFERÐ ENSKI BOLTINN

Liverpool –
Bournemouth

📍 Anfield, Liverpool · 📅 28.–31. maí 2027 · 3 nætur
Flug frá Keflavík · hótel · miði

BROTTFÖR
28. maí · Keflavík
Flug
LEIKUR
30. maí
kl. 12:00
HEIMFERÐ
31. maí · Manchester
Flug
LENGD
3 nætur, 4 dagar
Brottför til heimkomu

Nákvæmir flugtímar eru staðfestir síðar og sendast með bókunarstaðfestingu.

Lýsing

Lokaleikur tímabilsins á Anfield er alltaf sérstakur, og þegar Liverpool tekur á móti Bournemouth snýst dagurinn um miklu meira en bara níutíu mínútur. Hér er komið að síðasta heimaleiknum, leiknum þar sem tímabilinu er lokað á einum magnaðasta leikvangi Englands, og þar sem bæði úrslit leiksins og stemningin eftir á gefa deginum aukið vægi. Það er líka þessi árstími þar sem kveðjustundir leikmanna, þakklæti til stuðningsmanna og tilfinningin í stúkunni verða stór hluti af upplifuninni.

Bournemouth er lið sem getur gert lífið erfitt með skipulögðum og duglegum leik, þannig að þetta er ekki kvöld þar sem neitt kemur af sjálfu sér. Fyrir Liverpool-fólk er þó stærsta aðdráttaraflið að sjá liðið á Anfield í síðasta sinn þetta tímabilið, með öllu sem því fylgir þegar spennan safnast upp fyrir upphafsflaut og völlurinn fer á hreyfingu með liðinu.

Leikdagur í Liverpool byrjar löngu áður en sest er í sætið. Fólk safnast saman í kringum Anfield, söngvarnir taka yfir göturnar og það er sérstök tilfinning í loftinu þegar nær dregur leik. Á lokaleik tímabilsins verður þetta enn meira áberandi, enda er þetta sá heimaleikur sem margir bíða hvað mest eftir á hverju ári.

Flogið er með Icelandair til Manchester og þaðan er ekið til Liverpool í þægilegum 8 manna bílum. Gist er í þrjár nætur á Novotel Liverpool Centre með morgunverði, íslenskur fararstjóri er með hópnum allan tímann og skoðunarferð á völlinn er í boði fyrir þá sem vilja bæta enn einu Anfield-minningunni við ferðina.

Innifalið í ferðinni

  • Flug - skattar og gjöld innifalin 20 kg innrituð taska, 10 kg handfarangur og bakpoki.
  • Akstur til og frá flugvelli
  • Glæsilegt 4 stjörnu hótel í miðbæ Liverpool Með morgunverð og Spa aðstöðu
  • Aðgöngumiði á leikinn VIP Brodies lounge Anfield
  • Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum Gerir ferðina sem þægilegasta
  • Glaðningur frá PremierTrips
  • Facebook-hópur fyrir ferðina
  • Borgarrölt með leiðsögn
  • Skoðunarferð á Anfiled Fyrir þá sem velja það
  • Kvöldverður í boði PremierTrips

Dagskrá

28 maí
Liverpool, hér komum við! Brottför

Flogið er með Icelandair til Manchester þar sem fararstjóri PremierTrips tekur á móti hópnum. Við ökum til Liverpool og komum okkur fyrir á Novotel hótelinu. Síðan geta þeir sem vilja farið með fararstjóra í göngu um miðbæinn, fundið spennuna fyrir leiknum og byrjað helgina í góðum félagsskap.

29 maí
Frjáls dagur í Liverpool og Anfield skoðunarferð fyrir áhugasama Frjáls dagur

Njóttu Liverpool á þínum hraða, kíktu í verslanir, sestu inn á kaffihús eða skoðaðu borgina betur. Þeir sem hafa bókað skoðunarferð fara með fararstjóra að Anfield, ganga um svæðið við völlinn, sjá Jota vegginn og heyra sögur af Liverpool og stuðningsmönnum félagsins.

30 maí
Leikdagur á Anfield Leikdagur

Í dag er komið að lokaleik Liverpool á Anfield þegar Bournemouth mætir í heimsókn. Fyrir leik gefst tími til að njóta stemningarinnar í kringum völlinn áður en hópurinn tekur sæti í stúkunni. Söngvarnir, eftirvæntingin og leikurinn sjálfur gera þennan dag að hápunkti ferðarinnar. Um kvöldið býður PremierTrips öllum hópnum út að borða á Bem Brasil. Þar njótum við góðs matar og rifjum upp stundirnar frá Anfield.

31 maí
Heimferð eftir góða helgi Heimferð

Hópurinn er sóttur við Novotel hótelið og ekið á flugvöllinn í Manchester fyrir heimflugið. Við tökum með okkur góðar minningar frá Liverpool, nýjan félagsskap og stemninguna af Anfield.

Miðar og aðstaða

Algengar spurningar

ETA til Bretlands

Flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Það er á ábyrgð farþega að sækja um. Leiðbeiningar berast í staðfestingarpósti.

Ferðatrygging

Við mælum með ferðatryggingu sem nær yfir afbókun, sjúkrakostnað og farangur. Trygging er ekki innifalin í ferðinni.

Sérþarfir

Láttu okkur vita við bókun ef einhver í hópnum þarf aðstoð, sérfæði eða aðgengi. Við reynum að koma til móts við það eftir framboði.

Staðfestingargjald
Frestun leiks

Gisting og staðsetning

Novotel Liverpool Centre · 4★

Google-einkunn 4.3 (2789 umsagnir). Glæsilegt 4 stjörnu hótel í miðbæ Liverpool

Novotel Liverpool Centre, mynd 1
Novotel Liverpool Centre, mynd 2
Novotel Liverpool Centre, mynd 3

Umsagnir frá ferðafélögum

Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips

“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”

Steinar Haralds
Klikkaðir miðar

“Klikkaðir miðar á flottu verði”

anton örn

Sjá allar umsagnir

Bara miðinn á leikinn?

Stakir miðar ef þú skipuleggur flug og hótel á eigin vegum.

Skoða staka miða

Umsagnir frá ferðafélögum

Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips

“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”

Steinar Haralds
Klikkaðir miðar

“Klikkaðir miðar á flottu verði”

anton örn

Sjá allar umsagnir

249.900 kr. á mann Bókun lokar 9. apríl 2027
Bóka ferð