
Nákvæmir flugtímar eru staðfestir síðar og sendast með bókunarstaðfestingu.
Lýsing
Liverpool gegn Newcastle á Anfield er akkúrat svona leikur sem gerir vorferð til Englands sérstaklega spennandi. Hér færðu heimaleik hjá einu stærsta félagi landsins gegn liði sem yfirleitt mætir með skýra hugmynd um að sækja, pressa og gera þetta að alvöru Premier League-viðureign. Fyrir þá sem vilja sjá Liverpool í sínum rétta heimavallar ham er þetta leikur sem lofar yfirleitt góðu frá fyrstu mínútu.
Það sem gerir þessa viðureign áhugaverða er að Newcastle kemur ekki á Anfield til að halda stiginu. Það getur skapað opinn og hraðan leik þar sem mikið reynir á miðjuna, skiptin og ákvarðanatöku í teigunum. Liverpool á Anfield er alltaf sérstök upplifun í sjálfu sér, en þegar andstæðingurinn er þannig að leikurinn getur opnast á köflum verður umgjörðin enn skemmtilegri fyrir áhorfendur.
Leikdagur á Anfield hefur sinn eigin takt. Stuðningsmenn safnast snemma saman í kringum völlinn, treflarnir sjást alls staðar og söngvarnir byrja löngu áður en flautað er til leiks. Með VIP miða í Brodies lounge á Anfield Road færðu góða umgjörð í kringum leikinn, og fyrir þá sem vilja er skoðunarferð um völlinn í boði.
Flogið er frá Keflavík til Manchester og þaðan er ekið til Liverpool þar sem gist er á Novotel Liverpool Centre, fjögurra stjörnu hóteli í miðbænum með morgunverði og spa. Akstur til og frá flugvelli er innifalinn og íslenskur fararstjóri, Reynir Bergmann, fylgir hópnum. Einnig er sameiginlegur kvöldverður á Bem Brazil innifalinn.
Innifalið í ferðinni
- Flug — Icelandair skattar og gjöld innifalin
- Farangur 20 kg innritaður farangur + 10 kg handfarangur
- VIP Miði á leikinn Brodies lounge Anfield Road
- 4 stjörnu hótel í miðbæ Liverpool Innifalið morgunmatur og spa
- Akstur til og frá flugvelli
- Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum Reynir Bergmann
- PremierTrips gjöf
- Facebook-hópur fyrir ferðina
- Kvöldverður í boði PremierTrips Á Bem Brazil
Dagskrá
Brottför til Liverpool Brottför
Flogið er með Icelandair til Manchester þar sem fararstjóri PremierTrips tekur á móti hópnum. Þaðan er ekið til Liverpool og komið sér fyrir á Novotel hótelinu. Þeir sem vilja geta síðan farið með fararstjóra í göngu um miðbæinn og fengið góð ráð fyrir helgina.
Frjáls dagur og Anfield Frjáls dagur
Dagurinn er ykkar til að njóta Liverpool. Þeir sem hafa bókað skoðunarferð með fararstjóra fara um svæðið við Anfield, sjá meðal annars Jota vegginn og heyra sögur af félaginu og stuðningsmönnum þess.
Liverpool gegn Newcastle Leikdagur
Nú er komið að því sem við höfum beðið eftir. Liverpool tekur á móti Newcastle á Anfield og hópurinn upplifir leikdaginn, söngvana og stemninguna úr stúkunni. Um kvöldið býður PremierTrips öllum hópnum út að borða á Bem Brasil. Þar endum við leikdaginn saman yfir góðum mat og spjalli.
Heimferð Heimferð
Hópurinn er sóttur við hótelið og ekið á flugvöllinn í Manchester. Heim er haldið með góðar minningar frá Liverpool og stemninguna á Anfield enn í fersku minni.
Fararstjóri
Reynir B Reynisson
Miðar og aðstaða
Brodies Sports Bar á Anfield Opnar 2,5 klst fyrir leik - og er opinn 1 klst eftir leik. Beint aðgengi frá Brodies Sports barnum og yfir í sætin. Úrval af street food veitingum innifalið í miðaverði. Veitingar í boði fram að leik. Bar (drykkir ekki innifaldir í verði). Drykkur í hálfleik innifalinn í verði (bjór, vín eða óáfengir drykkir). Leikskrá í boði. "Liverpool legend" mætir á svæðið fyrir leik. Skemmtiatriði fyrir leik. Veðmála svæði. Sæti saman. Ekkert dresscode - en búningar frá gestaliði eru bannaðir (away colors).
Algengar spurningar
ETA til Bretlands
Flestir íslenskir ferðamenn þurfa ETA áður en haldið er til Bretlands. Það er á ábyrgð farþega að sækja um. Leiðbeiningar berast í staðfestingarpósti.
Ferðatrygging
Við mælum með ferðatryggingu sem nær yfir afbókun, sjúkrakostnað og farangur. Trygging er ekki innifalin í ferðinni.
Sérþarfir
Láttu okkur vita við bókun ef einhver í hópnum þarf aðstoð, sérfæði eða aðgengi. Við reynum að koma til móts við það eftir framboði.
Staðfestingargjald
Frestun leiks
Gisting og staðsetning
Novotel Liverpool Centre
Google-einkunn 4,3 (2.740 umsagnir). 4 stjörnu hótel í miðbæ Liverpool
Umsagnir frá ferðafélögum
Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”
Klikkaðir miðar“Klikkaðir miðar á flottu verði”
Bara miðinn á leikinn?
Stakir miðar ef þú skipuleggur flug og hótel á eigin vegum.
Skoða staka miðaUmsagnir frá ferðafélögum
Ferð upp á 10 – mæli með PremierTrips“Opnunarleikur deildarinnar 25/26, Liverpool–Bournemouth. PremierTrips sá um allt og fararstjórn. Þetta var ferð upp á 10 og ég mæli með. Ég er strax farinn að huga að næstu ferð.”
Klikkaðir miðar“Klikkaðir miðar á flottu verði”